Þessi kökusneið kostar 31.000 krónur

Þessi kökusneið gæti verið ferðarinnar virði til Ástralíu.

Þessi kökusneið gæti verið ferðarinnar virði til Ástralíu. Samsett mynd/Bakedsydney.com

Bakaríið BAKE’D Sydney í Ástralíu selur það sem það kallar stærstu súkkulaði-fudge-kökusneið heims. Sneiðin kostar 369 ástralska dollara, sem jafngildir um 31.000 íslenskum krónum.

Kökusneiðin er engin smásmíði. Hún er sex laga með mjúkri súkkulaðifyllingu og súkkulaðisósu yfir sem bakaríið kallar „mud sauce“. Sannkölluð súkkulaðiveisla.

Ein sneið fyrir heilan hóp

Samkvæmt bakaríinu dugar sneiðin í um 25–30 skammta. Hún gæti því hentað vel fyrir stóra hópa, en fjöldinn fer auðvitað eftir því hversu rausnarlega er skorið.

Það er þó ekki hægt að ganga beint inn í bakaríið og búast við að fá þessa risasneið afgreidda á staðnum. Það þarf að panta sneiðina með að minnsta kosti fimm daga fyrirvara.

Bakaríið birti nýverið skemmtilegt myndskeið af sneiðinni á samfélagsmiðlum sem vakti mikla athygli. Fjöldi netverja skrifaði athugasemdir og sagðist meira en til í að smakka, þótt ekki væri nema örlítið brot af sneiðinni.

Ætli þau sendi til Íslands?

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅