Sitthvort stigið eftir háspennuleik
Víkingur úr Reykjavík og Stjarnan gerðu jafntefli, 27:27, í lokaleik tíundu umferðar úrvalsdeildar karla í handbolta í Safamýrinni í kvöld.
Víkingur er í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig en Stjarnan er í ellefta sæti með sex.
Mikið jafnræði var á milli liðanna mestallan leikinn en Víkingar voru marki yfir í hálfleik, 15:14.
Stjörnumenn voru mest megnis með forystuna í seinni hálfleik en Víkingar jöfnuðu metin í 26:26 þegar tvær mínútur voru eftir.
Ásgeir Snær Vignisson kom síðan Víkingi yfir, 27:26, þegar 44 sekúndur voru eftir en Matthías Dagur Þorsteinsson jafnaði metin þegar 21 sekúnda var eftir.
Víkingur nýtti síðan ekki síðustu sókn sína.
Jón Karl Einarsson skoraði sjö mörk fyrir Víkinga og Þorgeir Bjarki Davíðsson fimm. Gauti Gunnarsson skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna og Bjarki Jóhannsson sex. Sigurður Dan Óskarsson varði þá fimmtán skot.
Mörk Víkings: Jón Karl Einarsson 7, Þorgeir Bjarki Davíðsson 5, Ísak Óli Eggertsson 4, Sigurður Páll Matthíasson 4, Ásgeir Snær Vignisson 2, Gunnar Hrafn Pálsson 2, Kristján Helgi Tómasson 2, Elvar Otri Hjálmarsson 1.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 6 (26%), Daði Bergmann Gunnarsson 5 (33%).
Mörk Stjörnunnar: Gauti Gunnarsson 8, Bjarki Jóhannsson 6, Ísak Logi Einarsson 3, Jóhannes Bjorgvin 3, Tandri Már Konráðsson 2, Jóel Bernburg 2, Dagur Sverrir Kristjánsson 1, Matthías Dagur Þorsteinsson 1, Tóki Friðriksson 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 15 (37%).
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗