Píanóleikara bjargað eftir níu klukkustundir í sjó
Tveir menn á heimleið úr veiðiferð björguðu píanóleikara sem hafði fallið fyrir borð af skemmtiferðaskipi undan ströndum Kaliforníu á dögunum.
Talið er að hann hafi verið í sjónum í um níu klukkustundir.
Sean Norton og Grant Garrett höfðu verið við veiðar nærri Catalina-eyju þegar skipstjórinn kom auga á mann í sjónum. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs var hann að halda sér á floti um 32 kílómetra frá eyjunni.
Mennirnir komu honum um borð og sendu út neyðarkall.
„Við Grant tókum hvor í sinn handlegginn og hífðum hann upp. Hann var í algjöru áfalli,“ sagði Norton við miðilinn.
„Það eina sem hann sagði við mig var: „Takk. Ég hélt að ég myndi deyja.““
Líðan stöðug eftir björgun
Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, starfar sem píanóleikari um borð í Ovation of the Seas, skemmtiferðaskipi Royal Caribbean.
Hann var fluttur á sjúkrahús og var líðan hans stöðug. Strandgæslan rannsakar nú atvikið.
Í yfirlýsingu frá Royal Caribbean segir að félagið veiti starfsmanninum stuðning og aðstoð en frekari upplýsingar verði ekki veittar af tillitssemi við einkalíf hans.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗