Ekki með glingur eða húðflúr um líkamann

Arnar Gunnlaugsson

Arnar Gunnlaugsson mbl.is/Karítas

„Ég get vel tekið undir það,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari þegar hann var spurður hvort Daníel Leó Grétarsson væri vanmetnasti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta.

Andri Lucas Guðjohnsen hafði nefnt Daníel Leó þegar hann fékk sömu spurningu. Arnar hrósaði miðverðinum á blaðamannafundi í dag.

„Hann er ekki með glingur um hálsinn eða húðflúr út um allan líkamann, ekki að það sé eitthvað að því, en hann lætur bara verkin tala úti á vellinum.“

Arnar segir stöðugleikann gera Daníel Leó sérstaklega verðmætan.

„Hann er grjótharður náungi. Hann er ekki með tvist og níur, heldur níur og sjöur. Lélegi leikurinn hans er sjö og það er gulls ígildi, sérstaklega hjá varnarmanni.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅