Átti sambýliskonu og fimm ástkonur – Brjálaðist og skaut sex manns

Það sló algjörlega út í fyrir hinum 45 ára Fatih Gazioglu þegar þýsk yfirvöld sviptu hann og sambýliskonu hans forræði yfir þriggja mánaða gamalli dóttur þeirra. Litla stúlkan hafði verið hrist svo svakalega að hún fékk heilablæðingu. Foreldrarnir voru á móti bráðaaðgerðinni sem læknar mæltu með.

Skömmu eftir að ákvörðunin um forsjársviptinguna lá fyrir kom Gazioglu inn í úthlutunarstöð mæðrahjálparinnar í bænum Stade, sem er vestan við Hamborg, og dró upp skammbyssu og skipaði öllum viðstöddum að sitja kyrr með hendur á borðinu.

Talið er að hann hafi ætlað að mynda fólkið til að fá „sannleikann“ út úr því. En þegar einn karlkyns gíslanna reyndi að afvopna hann hófst blóðbaðið.

Fjórar konur á aldrinum 24 til 54 ára og tveir karlar, 34 og 48 ára, voru skotin til bana á þremur örlagaríkum mínútum. Öll voru þau skotin í höfuðið.

Gazioglu hleypti 21 skoti af úr Bertta skammbyssunni sinni. Hann hafði keypt hana á svarta markaðnum í Berlín tveimur dögum áður og greiddi 4.000 evrur fyrir hana.

Þetta gerðist í lok júní á þessu ári. Þýska dagblaðið Bild hefur fengið aðgang að gögnum lögreglunnar í málinu en það vakti að vonum mikla athygli og óhug í Þýskalandi.

Gazioglu var handtekinn á dramatískan hátt strax eftir morðin en þá reyndi hann að komast á brott í Mercedes Benz bifreið sem hann neyddi sambýliskonu sína til að aka.

Lögreglumenn náðu að sprengja eitt dekk með því að skjóta í það og þegar bíllinn kom að vegatálma náði lögreglan að yfirbuga Gazioglu.

Gazioglu var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þar tókst honum að stytta sér aldur. Áður en hann gerði það trúði hann samfanga sínum fyrir að þriggja mánaða dóttir hans hefði með augnaráðinu sagt honum að gerast morðingi.

Bild segir að rannsókn lögreglunnar hafi leitt í ljós að Gazioglu hafði árum saman lifað sem ástarsvikahrappur sem notfærði sér sambýliskonu sína og fimm ástkonur fjárhagslega og tilfinningalega.

Þetta á meðal annars við um 74 ára konu í Bremen, aðra konu í Lettlandi, eina í Marokkó og tvær til viðbótar í Þýskalandi.

Sambýliskona hans, sem er 34 ára, gengur laus en er með stöðu grunaðs í málinu þar sem hún er grunuð um aðild að morðunum og fyrir að beita dóttur sína grófu ofbeldi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅