Smíðar íslensk fjárhús í Mongólíu: „Svona er lífið óútreiknanlegt“

Fjárhúsið, sem smíðað var að íslenskri fyrirmynd, opnaði á sléttum Norðaustur-Mongólíu í gær. Facebook/Ásmundur Einar Daðason

Ásmundur Einar Daðason, fyrrum mennta- og barnamálaráðherra, hefur ekki setið auðum höndum frá því að þingsetu hans lauk undir lok árs 2024, og er eitt þeirra verkefna sem hann hefur tekið sér fyrir hendur hið athyglisverðasta og teygir sig langt út fyrir landsteinana.

Í færslu á Facebook greinir hann frá aðkomu sinni og föður síns að smíði fjárhúsa sem reist voru að íslenskri fyrirmynd á sléttum Norðaustur-Mongólíu, þangað sem Ásmundur hefur verið tíðförull á undanförnum sautján mánuðum, í haust og hafa nú verið opnuð.

„Stundum er lífið magnað!“ segir Ásmundur í færslunni, sem fylgir fjöldi mynda frá mongólskum sléttum sem fjárhúsin prýða nú. „Ef einhver hefði sagt mér, þegar síðustu alþingiskosningar fóru fram, að ég yrði tveimur árum síðar að smíða jötur í fjárhúsi í Mongólíu, hefði ég líklega ekki trúað því!“

Fjárhúsið íslenska sómar sig vel í mongólskri náttúru.

Fjárhúsið íslenska sómar sig vel í mongólskri náttúru. Facebook/Ásmundur Einar Daðason

Ræðismaður Mongólíu kveikjan að ævintýrinu

Ásmundur er búfræðingur að mennt og eru foreldrar hans bændur, og því má ætla að feðgunum Ásmundi og Daða hafi verið hæg heimatökin við smíði fjárhúsanna íslensku.

„Það eru aðeins 17 mánuðir síðan ég kom fyrst til Mongólíu. Þá hefði mér aldrei dottið til hugar að 12 ára gamalt spjall við ræðismann Íslands í Mongólíu (sem síðar varð góður vinur) myndi leiða mig 5 sinnum til þessa lands og í þetta ævintýri,“ segir í færslu Ásmundar.

Framkvæmdir við bygginguna hófust í ágúst, og frá því að feðgarnir lentu í Mongólíu á fimmtudag höfðu þeir unnið ásamt hópi mongólskra hirðingja og heimamanna við að smíða þar innréttingar, jötur og stíur.

Ævintýrið í Mongólíu rétt að byrja

Ásmundur hefur skrásett Mongólíuferðina ítarlega í stuttum myndskeiðum undir Story-flipa Facebook, og fengið að kynnast mongólskum búnaðarháttum.

„Svona er lífið óútreiknanlegt. Eftir öll árin í stjórnmálunum er svo yndislegt að kynnast nýjum hlutum á allt öðrum og óvæntum stað í heiminum. Ég hef kynnst alveg frábæru fólki hér í Mongólíu og þessi þjóð er á margan hátt svo einstök,“ segir að endingu í færslu Ásmundar.

„Hver veit hvert þetta leiðir okkur næst? Allskonar hugmyndir í vinnslu... Eitt er víst, ævintýrið í Mongólíu er rétt að byrja og lífið heldur áfram að koma á óvart!“

Mongólskar ær virðast una sér vel í fjárhúsinu íslenska.

Mongólskar ær virðast una sér vel í fjárhúsinu íslenska. Facebook/Ásmundur Einar Daðason

Feðgarnir ásamt hópi hirðingja og byggingarmeistara heimamanna.

Feðgarnir ásamt hópi hirðingja og byggingarmeistara heimamanna. Facebook/Ásmundur Einar Daðason

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅