Brú leikhússins með akreinar í báðar áttir

Tinna ásamt andmælendunum Ástráði Eysteinssyni prófessor og Guðrúnu Kristinsdóttur nýdoktor og stundakennara. Ljósmynd/HÍ/Gunnar Sverrisson

„Það er alltaf gaman að klára það sem maður byrjar á en þetta doktorsnám var raunar ekkert sem ég hafði gert neinar áætlanir um. Eitt leiddi af öðru og þetta varð niðurstaðan,“ segir Tinna Gunnlaugsdóttir þegar Morgunblaðið forvitnaðist um hvernig tilfinning það væri að hafa lokið doktorsprófi. Eftir farsælan feril sem leikkona og þjóðleikhússtjóri snéri Tinna sér að námsbókunum og varði nýlega doktorsritgerð í þýðingafræði.

„Í doktorsritgerðinni rannsaka ég áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi, en leiklistin barst seint til Íslands miðað við þau lönd sem við berum okkur helst saman við. Stutt þroskasaga hennar færir hins vegar sönnur á mikilvægi þeirrar menningarmiðlunar sem á sér stað með þýðingum í sínum margvíslegu myndum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna þannig fram á að innlend leiklistarsaga og innlend leikritun hafi hafist með þýðingum. Niðurstöðurnar sýna einnig fram á að þróun leiklistarinnar á Íslandi var nokkuð hröð eftir að skriður komst á hana í byrjun tuttugustu aldar. Við höfum að vísu ekki eignast neinn Shakespeare, Ibsen eða Tsjekhov. Þar misstum við af lestinni því þjóðin var lengi framan af aftengd þeim menningarheimi sem fæddi af sér slíka snillinga,“ segir Tinna en það segir ekki alla söguna.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅