Segja stefna í fimm milljarða halla
Forstjórarnir segja meginástæðu hallans vera að stofnununum hafi ekki að fullu verið bættur aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga sem ríkið gerði í lok árs 2024. mbl.is/Golli
Samanlagður rekstrarhalli sex heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni er áætlaður um fimm milljarðar króna í árslok ef engin viðbótarframlög berast.
Forstjórar þeirra segja rekstrarstöðuna hafa sjaldan verið veikari.
Í sameiginlegu minnisblaði til fjárlaganefndar Alþingis vegna fjárlaga 2027 segja þeir áætlaðan halla ársins 2026 nema 5–15% af veltu, eftir stofnunum. Hann bætist við uppsafnaðan halla fyrri ára.
Vara við áhrifum á þjónustuna
Forstjórarnir segja meginástæðu hallans vera að stofnununum hafi ekki að fullu verið bættur aukinn launakostnaður vegna kjarasamninga sem ríkið gerði í lok árs 2024.
Flestar stofnananna hafi gert ráðuneytinu grein fyrir hallanum og mögulegum viðbrögðum. Heilbrigðisráðuneytið hafi ítrekað að laga beri reksturinn að fjárveitingum. Að óbreyttri fjármögnun krefjist það aðgerða sem geti haft veruleg áhrif á þjónustuna.
Einskiptisframlög leysi ekki vandann
Forstjórarnir óska eftir varanlegri leiðréttingu á rekstrargrunni stofnananna í fjárlögum næsta árs. Viðvarandi vandi verði ekki leystur með einskiptisframlögum í árslok.
Þeir kalla eftir fullri fjármögnun kjarasamninga og raunhæfum framlögum til hjúkrunarrýma, húsnæðis og sjúkraflutninga. Fjárveitingar til heilsugæslu þurfi jafnframt að fylgja íbúaþróun og þjónustuþörf.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/59/48/1594870.jpg)