Krefjast svara - „Þetta er skaðlegt“

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is, eins og alla föstudaga.

Það er ekki enn ljóst hvað verður um Manchester City í kjölfar þess að félagið var fundið brotlegt um stórfelld fjárhagsbrot. 

Líklegt er að félagið fái harða refsingu en á meðan það er óljóst hver hún verður keppir liðið á toppnum í ensku úrvalsdeildinni.

„Það verður að fara að fást niðurstaða í þetta mál. Hvað ef þeir verða á toppnum þegar það er mánuður eftir af mótinu og enginn veit hvort þeir geti orðið meistarar?“ velti Hörður upp.

„Þetta er skaðlegt fyrir vöruna, þessi óvissa,“ sagði Helgi.

Þátturinn er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅