Tryggvi lét finna fyrir sér
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason var drjúgur þegar lið hans Bilbao mátti þola tap fyrir Murcia, 84:76, í efstu deild spænska körfuboltans í Bilbao í kvöld.
Þetta var annar tapleikur Bilbao í röð í deildinni en liðið situr í níunda sæti með átta stig.
Tryggvi skoraði átta stig, tók tíu fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 22 mínútum spiluðum í leiknum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗