Lærisveinar Guðjóns Vals á miklu skriði
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach unnu fjögurra marka sigur á Hannover-Burgdorf, 33:29, í þýsku Bundesligunni í handbolta í Gummersbach í kvöld.
Þetta var fjórði sigur Gummersbach í röð í deildinni en liðið er nú með 16 stig í sjötta sæti. Hannover-Burgdorf er hins vegar í níunda með tólf.
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach en Elliði Snær Viðarsson og Garðar Ingi Sindrason skoruðu sitthvort markið.
Hjá Hannover-Burgdorf skoraði Sigvaldi Björn Guðjónsson þrjú mörk en Heiðmar Felixsson er aðstoðarþjálfari liðsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗