Brá við að sjá gervigreindarauglýsingu af sjálfum sér
Þessari ljósmynd af feðgunum var breytt með gervigreind og hún notuð í auglýsingaskyni. Sigurður hyggst kynna sér ámóta atvik betur í störfum sínum á Alþingi og skoða hvort skýrari laga og úrræða sé þörf til þess að vernda rétt einstaklinga til eigin ímyndar. Ljósmynd/Facebook
Eigum við sjálf réttinn yfir eigin andliti, eða geta aðrir tekið það og notað að vild? Og hver ber ábyrgðina þegar það gerist?
Þessum áleitnu spurningum veltir Sigurður Helgi Pálmason, þingflokksformaður Flokks fólksins, fyrir sér í kjölfar þess að erlent fyrirtæki notfærði sér ásjónu hans í auglýsingaskyni og breytti klæðaburði hans með gervigreind.
„Í morgun sá ég nokkuð sem mér fannst frekar óhugnanlegt,“ segir í færslu Sigurðar sem birtist á Facebook fyrir skemmstu. „Erlent fyrirtæki hafði tekið ljósmynd af mér og pabba af Facebook síðu minni, breytt henni með gervigreind og notað í greidda auglýsingu hér á Íslandi.“
„Hálfrennslisjakkar“ auglýstir
Sigurður segir sér hafa brugðið þegar hann sá auglýsinguna, ekki síst í ljósi þess að myndin var ekki tekin af honum í embættisstörfum heldur var um að ræða fjölskyldumynd.
„Sem alþingismaður geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er opinber persóna. En þetta er mynd af mér og pabba.“
Hann segist eftir nokkra fyrirhöfn hafa fengið Facebook til að fjarlægja auglýsinguna, þar sem auglýstir voru svokallaðir „hálfrennslisjakkar“ í yfir 30 „stíl“. Hann telur það jafnframt nokkuð merkilegt að síða fyrirtækisins fái enn að standa óhreyfð.
„Hvað kemur þá í veg fyrir að fyrirtækið, sem virðist aðeins vera viku gamalt og skráð erlendis, taki aðra mynd og geri nákvæmlega það sama aftur?“
Sigurður birti skjáskot af auglýsingunni umræddu með færslu sinni, en þar voru auglýstir svokallaðir „hálfrennslisjakkar“ og notast við gervigreind til þess að klæða þá feðga peysunum. Skjáskot/Facebook
Ekki allir átti sig á gervigreindarbreyttum myndum
Hann segir það jafnframt undarlegt að hugsa til þess hvað hafi farið í gegnum huga þeirra sem sáu auglýsinguna án þess að átta sig á því að ekki væri allt við hana með felldu, og spyr sig til hvers það sé gert að nota gervigreindarbreytta ásjónu hans í auglýsingaskyni.
„Vinir mínir og kunningjar myndu eflaust renna á þær tvær grímur ef þeir sæju mig auglýsa fyrirtæki sem ég hef aldrei heyrt um. En hvað með þá sem þekkja ekki til og átta sig síður á því að eitthvað sé ekki eins og það á að vera?“
Með gervigreind sé orðið ótrúlega auðvelt að taka myndir af fólki, breyta þeim og setja í allt annað samhengi, fólk sé misjafnlega vel að sér í tækninni og þróunin sé hröð.
Ábyrgð miðlanna sjálfra óljós
Þá vakni líka spurning um það hvaða ábyrgð samfélagsmiðlarnir sjálfir beri.
„Facebook tók við greiðslu fyrir að birta þessa auglýsingu og dreifa henni til fólks hér á landi. Hvaða ábyrgð ber fyrirtæki eins og Meta þegar það hagnast á birtingu auglýsinga sem nota myndir af fólki án leyfis? Og er nóg að fjarlægja eina auglýsingu þegar búið er að tilkynna hana, en leyfa sama aðila að halda áfram að auglýsa?“
Þá spyr hann sig líka hversu mikla vernd íslensk lög um höfundarrétt, persónuvernd og markaðssetningu veiti þegar erlend fyrirtæki geti notað andlit fólks í auglýsingaskyni án leyfis. „Hver ber ábyrgðina og hvernig á fólk að geta leitað réttar síns?“
Danir með frumvarp í bígerð
Þá bendir hann á að Danir séu að vinna að því að taka á sama vanda.
„Danir hafa lagt fram frumvarp sem miðar að því að tryggja einstaklingum skýrari rétt yfir eigin andliti og rödd gagnvart stafrænum eftirlíkingum. Hér á landi eru einnig breytingar á höfundalögum í undirbúningi.“
Hann kveðst ætla að kynna sér ástandið betur í störfum sínum á Alþingi og skoða hvort skýrari laga og úrræða sé þörf til þess að vernda rétt einstaklinga til eigin ímyndar.
„Þar vil ég ekki síður skoða ábyrgð samfélagsmiðla, sérstaklega þegar þeir taka sjálfir við greiðslum fyrir auglýsingar sem kunna að brjóta gegn réttindum fólks.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/24/1692465.jpg)
