Fimmtíu landsleikir aðeins 23 ára
„Það er stórt fyrir mig að ná fimmtíu leikjum, 23 ára,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson á blaðamannafundi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í dag.
Ísak var spurður út í landsleikafjölda sinn og hvort hann stefndi á að ná Aroni Einari Gunnarssyni, sem getur leikið sinn 113. landsleik gegn Lúxemborg á morgun.
„Ég tek bara einn leik og eitt verkefni í einu og reyni að haldast heill sem lengst.“
Hann segir sigur Íslands skipta meira máli en eigin tölfræði.
„Ég tek þetta eitt skref í einu og reyni að vinna leikinn á morgun. Þá heldur þetta áfram að tikka. Núna er ég bara að reyna að hjálpa Íslandi að vinna fótboltaleiki.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗