Rússar missa metfjölda hermanna – „Þeir eru auðvelt skotmark“
Pressan
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 18:30
Vegfarandi virðir fyrir sér lík rússneskra hermanna í Kupiansk. Mynd:Getty
Rússneskur hermaður gengur jöfnum skrefum yfir opinn akur nærri úkraínsku víglínunni. Hann er með bakpoka, riffil og virðist algjörlega óafvitandi að hann er nú í miðinu hjá úkraínskum dróna.
Dróninn flýgur á jöfnum hraða í átt að hermanninum. 100 metrar, hermaðurinn heldur áfram. 50 metrar, engin viðbrögð. Það er ekki fyrr en dróninn er í 20 metra fjarlægð sem hann áttar sig á hættunni og grípur riffilinn.
Nokkrum sekúndum síðar rofnaði útsendingin. Dróninn sprakk.
Ekki er vitað um örlög hermannsins en þetta er bara eitt marga myndbanda frá vígvellinum í Úkraínu þar sem mörg þúsund hermenn hafa verið sprengdir með drónum.
Úkraínumenn segja að október hafi verið blóðugasti mánuður stríðsins fram að þessu. Þeir segja að 54.200 rússneskir hermenn hafi fallið eða særst í mánuðinum. Það svarar til rúmlega 1.700 hermanna á sólarhring.
Það verður að taka þessum tölum með ákveðnum fyrirvara því þær koma frá Úkraínumönnum en hernaðarsérfræðingar eru ekki í neinum vafa um að tölurnar eru mjög háar um þessar mundir.
Drónar eru hluti af skýringunni á þessu.
„Rússar nota fótgönguliða, það er hermenn án ökutækja, til árása og þeir eru bara auðveld skotmörk fyrir dróna,“ hefur Danska ríkisútvarpið eftir Snorre Anker Erngaard, hernaðarsérfræðingi við danska varnarmálaskólann.
Hörðustu bardagarnir þessa dagana eru við austurvígstöðvarnar. Þar reyna rússneskar hersveitir hvað eftir annað að uppfylla draum Pútíns um að ná Donbas-héraðinu öllu undir rússneska stjórn.
En Úkraínumenn eru með sterkustu varnarlínur sínar þarna. Þeir hafa heldur ekki setið auðum hönum og náðu nýlega stórum landsvæðum nærri bænum Lyman á sitt vald á nýjan leik.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗