Gömul kirkja var rifin niður – Lúxusíbúðir byggðar og nú upplifa íbúarnir reimleika
Þetta átti eiginlega bara að vera ósköp venjulegt íbúðabyggingaverkefni í Chicago. Gömul og ónotuð kirkja var rifin niður og í staðinn voru nútímalúxusíbúðir byggðar.
En eftir því sem íbúar á svæðinu segja, þá er eitthvað mikið að nýju íbúðunum. Þær eru sagðar hafa staðið tómar mánuðum saman og er ástæðan sögð vera dularfullir atburðir sem iðnaðarmenn, fasteignasalar og hugsanlegir kaupendur hafa upplifað.
Dyr lokast af sjálfu sér, vatn fer skyndilega að renna úr krönum og svo er saga um byggingaverkamenn sem flúðu frá byggingasvæðinu og hrópuðu „djöflar“.
Þetta hljómar kannski eins og upphafið á hryllingsmynd en sagan kemur frá konu að nafni Tessa sem skýrði frá þessu á TikTok undir notendanafninu @tessa420. Hún segist sjálf hafa upplifað eitthvað óútskýranlegt þegar ein af íbúðunum var sýnd.
Tessa segir að nýbyggingarnar séu í gömlu hverfi í Chicago þar sem margar af byggingunum er 70 til 120 ára gamlar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗