Á von á fundi með flugmönnum á næstu dögum
Enginn fundur hefur verið boðaður hjá ríkissáttasemjara á milli fulltrúa Icelandair og þeirra félaga sem fyrirtækið hefur átt í kjaraviðræðum við undanfarna mánuði.
Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.
Útlit er fyrir að lítið sé að hreyfast áfram í kjaraviðræðunum en Icelandair og félög flugvirkja, atvinnuflugmanna og flugfreyja hafa sent yfirlýsingar í fjölmiðla nú um helgina en í yfirlýsingu Boga Nils Bogasonar forstjóra og Guðmundar Hafsteinssonar, stjórnarformanns Icelandair, sagði að félögin væru að draga upp villandi og ósanngjarna mynd af Icelandair.
Viðræðurnar tekið langan tíma
Þrátt fyrir að enginn fundur hafi verið boðaður á milli Icelandair og félaganna þriggja á Ástráður von á að fundur verði boðaður á milli Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna á næstu dögum enda hafi verið boðaðar verkfallsaðgerðir meðal flugmanna Icelandair í leiguflugi.
„Ég er alltaf vongóður. Ég er vongóður frá því að ég vakna á morgnana þangað til að ég sofna á kvöldin og er það líka þess á milli,“ segir Ástráður spurður hvort hann sé vongóður um að hreyfingar verði í viðræðum Icelandair og atvinnuflugmanna.
Það liggur nú alveg fyrir að þessar viðræður hafa ekki gengið mjög vel, er það ekki?
„Þetta hefur verið tafsamt, þetta er búið að taka dálítið langan tíma. Það hefur verið býsna mikið bil á milli manna en alltaf þegar menn tala saman þá minnkar bilið.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗