Thea fór á kostum
Thea Imani Sturludóttir fór á kostum í sigri Craiova gegn Targu Jiu, 28: 22, í 9. umferð efstu deildar Rúmeníu í handbolta kvenna í dag.
Craiova situr nú í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig, fimm stigum frá toppsætinu.
Thea var markahæst í dag en hún skoraði átta mörk úr aðeins 10 skotum. Thea gekk í raðir Craiova fyrir tímabilið en hún hafði leikið með Val fyrir það.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗