Allt á útopnu við opnun Reykjabaðanna
Það var mikil stemning við formlega opnun Reykjabaðanna í vikunni. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
Það var sannkölluð hátíðarstemning á fimmtudagskvöldið 12. nóvember þegar opnun Reykjabaða og Hot Springs Lodges by The Greenhouse var fagnað með glæsilegu opnunarpartýi. Fjöldi gesta komu saman til að fagna þessum nýja áfangastað.
Hápunktur kvöldsins var þegar Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar KALEO, steig á svið ásamt Davíð Antonssyni trommara og vígðu nýtt viðburðarsvið Reykjabaða með eftirminnilegri tónlistarflutningi. Í framhaldinu hélt Doctor Victor uppi frábærri stemningu.
Gestir fengu að upplifa Reykjaböð í nýju ljósi þar sem baðlónið breyttist í einstakan viðburðastað með tónlist, ljósum og líflegri stemningu.
Kvöldið einkenndist af gleði og fögnuði í fallegu umhverfi Reykjadals. Opnunarhátíðin markaði tímamót fyrir Reykjaböð og Hot Springs Lodges by The Greenhouse og gaf gestum jafnframt forsmekkinn að þeim fjölbreyttu upplifunum og viðburðum sem framundan eru.
Guðjón Már Guðjónsson, Brynjólfur J. Baldursson og Jason Daði Guðjónsson. Ljósmynd/Rebekka Rut Marinósdóttir
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




























