Góðkunningjar lögreglu í haldi

Tveir eru í haldi.

Engum vopnum var beitt í líkamsárás sem greint var frá nú síðdegis þar sem tveir menn veittust að einum í miðbæ Reykjavíkur í dag. 

Þetta segir Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi í samtali við mbl.is. Árásin átti sér klukkan rúmlega 10 í morgun. 

Árásarmennirnir tveir og fórnarlamb árásarinnar eru allir lögreglu vel kunnugir að sögn Jóns Þórs. Árásarþolinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. 

Árásin er ekki skilgreind sem alvarleg líkamsárás enda hlaut fórnarlamb hennar ekki alvarleg meiðsl. Jón Þór segir þó að eðli máls samkvæmt sé um alvarlegt mál að ræða enda hafi mennirnir veist að einum með hnefahöggum. 

Árásarmennirnir tveir eru enn í haldi lögreglu. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅