Sektuð vegna ósannaðra og villandi auglýsinga
Neytendastofa hefur sektað Ferðaskrifstofu Icelandia ehf. fyrir brot gegn markaðssetningarlögum vegna auglýsinga og markaðssetningar félagsins sem lutu að fullyrðingum um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi, aðallega rútuferðir.
Ásamt því að leggja á sektina, sem nemur 800.000 krónum, hefur Neytendastofa bannað ferðaskrifstofunni notkun fullyrðinga um kolefnishlutleysi og umhverfisvæni, og hefur það bann þegar tekið gildi.
Í ákvörðun Neytendastofu kemur meðal annars fram að félagið kolefnisjafni ekki allar rútuferðir sínar, heldur einungis hluta þeirra, og kynningarefni sé eingöngu miðað við þá starfsemi. Fjöldi fullyrðinga sem notast hafi verið við í auglýsingastarfsemi hafi verið ósannaður, og þær því óréttmætar og villandi gagnvart neytendum.
Ekki fyllilega „carbon neutral“
Í auglýsingum ferðaskrifstofunnar kom ítrekað fram orðfæri og fullyrðingar þess efnis að starfsemi fyrirtækisins væri kolefnisjöfnuð, og að rútur fyrirtækisins, sem meðal annars ferjuðu ferðamenn um náttúruperlur Suðurlands, væru umhverfisvænar.
Í rannsóknarferli Neytandastofu hafi félagið ekki lagt fram nein gögn sem færi sönnur á að ökutæki félagsins séu „umhverfisvæn“, eins og vísað er til með beinum hætti í fullyrðingum í auglýsingum, þrátt fyrir að þau kunni að vera minna mengandi en eldri ökutæki, og því álit Neytendastofu að fullyrðingar félagsins þess efnis séu óréttmætar og villandi gagnvart neytendum.
Þá notaðist Icelandia einnig við orðmerki í markaðs- og kynningarefni sínu auk þess sem merkið var að finna á hluta ökutækja félagsins. Um var að ræða orðmerki með textanum „carbon neutral“ og „carbon neutral transfer“ umvafinn grænum hringjum.
Markmið að draga úr útblæstri
Í svörum Icelandia til Neytendastofu kom fram að helsta markmið félagsins sé að draga úr útblæstri og kolefnisjafna hluta af útblæstri frá starfsemi félagsins.
Félagið sé með ISO 14007 vottun á umhverfisstjórnunarkerfi sínu og hafi Gull umhverfisvottun frá VAKANUM.
Þá kaupi Icelandia vottaðar kolefniseiningar sem það nýti til að kolefnisjafna ferðir Flugrútunnar, dagsferðir og sérferðir. Kynningarefni félagsins um kolefnisjöfnun miðist því eingöngu við framangreinda starfsemi. Icelandia telji sig því geta staðið við það sem sé auglýst varðandi kolefnishlutleysi ferða Flugrútunnar og Reykjavik Excursions.
Fullyrðingar áberandi
Neytendastofa komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar Icelandia um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi væru ósannaðar og því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum, enda notkun Icelandia á fullyrðingum með skírskotun til umhverfisins víðtæk og áberandi.
Það var álit Neytendastofu að fullyrðingar Icelandia væru almennar og óljósar og ekki studdar viðhlítandi gögnum, og fullyrðingarnar gefi neytendum þannig ranglega til kynna að starfsemi Icelandia væri umhverfisvæn eða hafi í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið og væru þannig líklegar til að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti við félagið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗