Ísak spurður út í andlát afa síns á fréttamannafundi - „Mjög leiðinlegt að missa afa“

433

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 17:55

Ísak Bergmann Jóhannesson. Mynd: DV/KSJ

Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður íslenska landsliðsins, ræddi á fréttamannafundi í dag fráfall afa síns, Guðjóns Þórðarsonar, sem lést aðfaranótt föstudags, 71 árs að aldri.

Guðjón var einn þekktasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu og stýrði meðal annars landsliðinu með góðum árangri. Íslenska liðið mun minnast hans fyrir leikinn gegn Lúxemborg á morgun. Leikmenn bera sorgarbönd og mínútuþögn verður fyrir upphaf leiks.

Ísak greindi frá því að landsliðið hefði fengið fréttirnar áður en það mætti Búlgaríu. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hefði þá sýnt honum stuðning.

„Við vissum þetta fyrir leikinn gegn Búlgaríu. Arnar kom og knúsaði mig fyrir hann. Það er auðvitað mjög leiðinlegt að missa afa,“ sagði Ísak.

Hann sagði Guðjón hafa verið goðsögn í íslenskum fótbolta en lagði jafnframt áherslu á að halda einbeitingu fyrir verkefninu fram undan.

„Við þurfum að klára þetta vel,“ sagði Ísak og bætti við að það væri sárt að missa afa sinn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅