Segja risatankskip hafa sokkið
Risatankskip með yfir tvær milljónir tunna af hráolíu innanborðs sökk eftir að hafa rekist á sjódufl og orðið alelda í Hormússundi, að sögn íranska byltingarvarðarins í dag. Frásögnin hefur ekki fengist staðfest af óháðum aðilum.
Byltingarvörðurinn segir skipið hafa verið annað tveggja olíuflutningaskipa sem rákust á sjódufl á siglingu um sundið.
Frá því að stríðið í Mið-Austurlöndum hófst í lok febrúar hafa stjórnvöld í Íran takmarkað siglingar um Hormússund verulega og krafist þess að skip fari eftir siglingaleiðum sem þau hafa samþykkt. Þau hafa ítrekað ráðist á skip sem sigla um sundið án leyfis þeirra.
Bandaríkin hafa brugðist við með því að setja hafnbann á íraskar hafnir og aðstoða tankskip við siglingar um sundið. Að jafnaði fer um fimmtungur olíuviðskipta heims um þessa mikilvægu siglingaleið.
Bandaríkjaher fullyrti nýverið að hann hefði fjarlægt öll sjódufl af helstu siglingaleiðum um sundið.
Segja tvö tankskip hafa rekist á sjódufl
„Á síðustu klukkustundum rákust tvö olíuflutningaskip á sjódufl á siglingu eftir óheimilaðri leið í suðurhluta Hormússunds. Við það urðu miklar sprengingar og eldur kviknaði,“ sagði í yfirlýsingu byltingarvarðarins sem ríkissjónvarp Írans birti.
„Annað þessara skipa, risatankskip með yfir tvær milljónir tunna af hráolíu innanborðs, sökk í suðurhluta Persaflóa,“ sagði enn fremur.
Hvorki kom fram hvað skipin hétu né hvaðan þau voru.
Undanfarnar vikur hafa írönsk stjórnvöld ítrekað greint frá því að eldur hafi kviknað í skipum í sundinu og oft sagt þau hafa rekist á sjódufl.
Miðherstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, sem hefur umsjón með hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna á svæðinu, hefur aðstoðað skip við siglingar um sundið. Hún greindi frá því í síðasta mánuði að hún hefði frá því í sumar aðstoðað ríki við Persaflóa við að flytja út 1,5 milljarða tunna af olíu um Hormússund.
Óljóst hvort um sama atvik sé að ræða
Breska siglingaöryggismiðstöðin UKMTO sagði í dag að henni væri kunnugt um tilkynningu frá indverskum siglingayfirvöldum um árás á tankskip á Persaflóa. Ekki væri þó ljóst hvort sú tilkynning varðaði sama atvik og byltingarvörðurinn hefði greint frá.
Að sögn UKMTO var áhöfnin óhult. Ekki lágu fyrir upplýsingar um skemmdir á skipinu eða umhverfisáhrif.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗