Tveir í haldi eftir líkamsárás í miðbænum
Líkamsárás átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar tveir réðust á einn aðila sem var í kjölfarið fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið.
Í dagbók lögreglu segir að mennirnir tveir hafi í kjölfarið verið handteknir og gisti nú í fangaklefa.
Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Ekið á gangandi vegfaranda
Lögreglumenn á lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, var tilkynnt um umferðaróhapp. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti ökutæki af vettvangi með kranabifreið.
Þá var ekið á gangandi vegfaranda sem slapp með minniháttar meiðsli.
Einnig er minnst á tvö tilvik þar sem ökumenn voru stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum vímuefna og voru þau mál afgreidd samkvæmt venju.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗