Loka landamærum við Rússland eftir árásartilraun

Fyrr í dag tilkynnti Kristen Michal, forsætisráðherra landsins sem hér sést taka í hönd Úkraínuforsetans Volodimírs Selenskí, að GRU hefði fyrirskipað „tilraun til skemmdarverka“ gagnvart eistneska varnarmálafyrirtækinu Threod Systems í gærkvöldi. AFP/Ludovic Marin

Utanríkisráðherra Eistlands hefur lýst því yfir að landamærum Eista að Rússlandi verði lokað eftir meinta tilraun rússnesku leyniþjónustunnar til að kveikja í eistneskri drónaverksmiðju.

„Eistland mun loka öllum landamærastöðvum milli Eistlands og Rússlands frá og með 1. desember,“ segir í færslu utanríkisráðherrans Margus Tsahkna á X og vísaði hann til „skýrra sannana“ fyrir því að leyniþjónusta rússneska hersins, GRU, hefði fyrirskipað árásina.

Fyrr í dag tilkynnti Kristen Michal, forsætisráðherra landsins, á X að GRU hefði fyrirskipað „tilraun til skemmdarverka“ gagnvart eistneska varnarmálafyrirtækinu Threod Systems í gærkvöldi.

„Komið var í veg fyrir umfangsmikið tjón þökk sé hertum öryggisráðstöfunum og skjótum viðbrögðum löggæsluyfirvalda. Árásarmennirnir hafa verið handteknir,“ segir ennfremur í færslu Michals.

Following clear evidence that Russia’s military intelligence service GRU, ordered a sabotage attack against an Estonian defence industry company, Estonia will close all Estonian-Russian border crossing points as of 1 December. Russia must understand that hostile actions against Estonia come with consequences. Attempts to intimidate, destabilise, or undermine our security will not go unanswered. Closing the border crossings will reduce Russia’s ability to conduct hostile activities in Estonia and strengthen our efforts to prevent sanctions circumvention. I have informed my Finnish, Latvian, and Lithuanian counterparts of this decision.

— Margus Tsahkna (@Tsahkna) November 15, 2026

Tilraunum til að ógna verði svarað

Í færslu utanríkiráðherrans segir að Rússland verði að skilja að fjandsamlegar aðgerðir gegn Eistlandi hafi afleiðingar. Með lokun landamæranna verði Rússum gert erfiðara að athafna sig með fjandsamlegum hætti í Eistlandi, og jafnframt að komast hjá alþjóðlegum viðskiptaþvingunum.

„Tilraunum til að ógna, valda óstöðugleika eða grafa undan öryggi okkar verður svarað,“ segir í færslunni.

Hann sagðist jafnframt hafa upplýst starfsbræður sína í Finnlandi, Lettlandi og Litháen um ákvörðunina.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅