Strangar reglur settar í spænskum ferðamannabæ – Háar sektir við brotum

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 17:30

Það verður dýrt að vera staðinn að því að hrækja í Valencia.

Það getur orðið dýrkeypt að fara í frí til Valencia á Spáni, að minnsta kosti ef fólk fer ekki reglum borgaryfirvalda. Þau hertu nýlega reglur er varða hegðun ferðamanna og er markmiðið að binda enda á slæma hegðun þeirra.

Metro segir að brot á reglunum muni svo sannarlega koma við pyngju fólks. Nú verður hægt að sekta fólk um allt að 3.000 evrur ef það brýtur reglurnar. Það mun til dæmis kosta 1.500 evrur ef fólk er staðið að því að henda rusli á götuna, til dæmis tyggjói eða sígarettum.

Sama sekt liggur við því ef fólk hirðir ekki upp skít eftir dýrin sín.

Enn dýrara verður það ef fólk er staðið að því að hrækja eða kasta af sér vatni á almannafæri. Þá er sektin 3.000 evrur.

En það er ekki bara rusl og slæm hegðun sem borgaryfirvöld beina sjónum sínum að. Framvegis verða ákveðnar hömlur lagðar á hópa á hjólum og rafhlauphjólum. Framvegis mega að hámarki 10 ferðast saman í hóp á slíkum tækjum, áður voru mörkin sett við 15.

Ef hópurinn er stærri, verður að skipta honum upp og verða að minnsta kosti 50 metrar að vera á milli hópanna.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅