Rússneskur sérfræðingur segir að Trump geti orðið auðveldari bráð fyrir Pútín eftir kosningaósigurinn

Pressan

Sunnudaginn 15. nóvember 2026 17:30

Pútín og Trump. Mynd: Getty

Manstu eftur Gerhard Schröder? Það virðist kannski undarlegt að nefna hann í inngangi fréttar um Donald Trump og Vladímír Pútín en það er ekki að ástæðulausu að við nefnum þennan fyrrum kanslara Þýskalands til sögunnar í grein sem fjallar um hvaða áhrif stórsigur Demókrata í þingkosningum getur haft á Úkraínu, Rússland og stríðið og auðvitað Donald Trump.

Rússneski stjórnmálaskýrandinn Fyodor Krasheninnikov nefndi Schröder til sögunnar í samtali við Jótlandspóstinn. Schröder er nú orðinn 82 ára og löngu hættur afskiptum af stjórnmálum en er afar umdeildur í heimalandinu vegna tengsla hans við Rússland og Pútín.

Áhrif kosninga í Þýskalandi á Schröder og örlög hans eru einmitt það sem Vesturlönd eiga að óttast í tengslum við samband Trump við Rússland í kjölfar kosningaósigursins.

Á vef Rybar, sem er einn stærsti bloggmiðillinn í Rússlandi, segir í greiningu á stöðu mála að Trump sé ekki lengur nothæfur samningsaðili fyrir Rússland í kjölfar kosningaósigursins. Sérhver samningur við Trump verði eiginlega einskis virði. Valddreifingin í Bandaríkjunum geri að verkum að samningar verði ekki gerðir að lögum og því verði refsiaðgerðunum gegn Rússlandi ekki aflétt.

Rétt er að hafa í huga að Rybar er hliðhollur Pútín og styður stríðsreksturinn í Úkraínu.

Fyrrnefndur Krasheninnkov, sem er í útlegð í Belgíu og hefur góð tengsl við rússnesku stjórnarandstöðuna sem er í útlegð, sér ákveðin tækifæri fyrir Pútín í úrslitunum.

Þessi tækifæri má kannski kalla „nýjan Schröder“.

„Í huga Pútíns mun Trump nú verða lítt áreiðanlegur. Fyrir það fyrsta vegna þess að þingið er á móti honum og getur sett upp hindranir. Í öðru lagi þá á Trump tvö ár eftir í embætti og það verður örugglega ekki annað kjörtímabil. Þess vegna held ég að Pútín muni nú reyna að fá eins mikið út úr Trump og hann getur. Þess vegna getur hann kannski boðið Trump og nánasta samstarfsfólki hans ákveðið tækifæri: Þið hjálpið mér núna, á meðan þið eruð við völd, og þegar þið missið völdin, þá hjálpa ég ykkur. Sjáið bara dæmið um Schröder,“ hefur Jótlandspósturinn eftir Krasheninnkov.

Til að skýra Schröder tenginguna þá var hann kanslari frá 1998 til 2005. Eftir kosningaósigur hans 2005 samþykkti hann, nokkrum dögum áður en hann lét af embætti, Nord Stream 1 gasleiðsluna frá Rússlandi til Þýskalands. Skömmu síðar var hann gerður að stjórnarformanni fyrirtækisins sem átti leiðsluna. Eftir þetta hefur hann átt í góðu sambandi við Pútín og hefur fengið ýmsar stöður sem tengjast rússneska orkuiðnaðinum.

Pútín hefur lagt til að Schröder stýri friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu.

Krasheninnikov sagði að Pútín sé mjög góður að bjóða rétta fólkinu mútur og viðskiptatækifæri. „Því miður er Trump auðveld bráð að mínu mati,“ sagði hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅