Ég hef fulla stjórn á þessu
„Rick bætti svo miklu á sig að ég gat ekki lengur leikið áhættuatriðin hans,“ svarar Cliff Booth, spurður að því hvers vegna hann hafi hætt sem áhættuleikari fyrir hinn vinsæla Hollywoodleikara Rick Dalton. Þá var ekki um annað að ræða en að róa á ný mið og Cliff Booth finnur sér alltaf verkefni – enda fá dæmi um menn sem hugsa jafn stíft í lausnum en ekki vandamálum.
Cliff Booth varð fyrst á vegi okkar í kvikmynd Quentins Tarantinos, Once Upon a Time in Hollywood, og stal í margra huga þrumunni af aðalsöguhetjunni, téðum Rick Dalton. Svo vel þótti Brad Pitt fara með kappann að hann stóð á endanum uppi með sjálfan Óskarinn.
Og nú fær Pitt annað tækifæri til að blása lífi í Cliff Booth – í sjálfstæðri framhaldsmynd með ruddalega löngum titli – The Further Mis-Adventures of Cliff Booth. Tarantino skrifar handritið sem fyrr en leikstjóri er David Fincher.
Átta ár eru liðin
Átta ár eru liðin, 1977 gengið í garð, og Los Angeles þarf ekki lengur á áhættuleikara að halda sem drepur hippa, eins og áður var. En Hollywood glímir sífellt við vandamál – sem aðeins verða leyst af manni með þá sérstöku (og stundum lagalega vafasömu) hæfileika sem Cliff býr yfir. Þegar Cliff Booth er ekki að hafa ofan í sig og á með því að vinna á bar eða sem kvikmyndasýningarstjóri, þá gegnir hann hlutverki „reddara“ – greiðir úr flóknum málum fyrir stórmenni Hollywood sem ef til vill eru ekki öll með hæsta þröskuldinn siðferðislega.
Fincher ber lof á Pitt í samtali við Empire. „Hann er á kafi í þessu. Það sem er skrýtnast og áhugaverðast við þetta, að mínu mati, er að ég hef aldrei lent í þeirri stöðu að leikarinn, sem fer með hlutverkið, viti meira um persónuna en ég mun nokkurn tíma vita. Stundum þarf maður að setja þar mörk. Ég þekkti nýju atriðin, en Brad vissi hver persónan var – þannig að hann kippti sér ekkert upp við spurningar á borð við: „Hvað með þetta? Hvað með hitt?“ Hann svaraði bara: „Nei, nei, nei. Ég hef fulla stjórn á þessu.“
Nánar er fjallað um The Further Mis-Adventures of Cliff Booth í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins en myndin kemur inn á Netflix á Þorláksmessu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗