Þúsundum gert að yfirgefa landið
Fyrstu hirðingjarnir komu til Níger í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar. Þeir flúðu þá skæða þurrka á heimaslóðum sínum í Abéché-héraði í austurhluta Tsjad. Mynd úr safni. Ljósmynd/Colourbox
Nokkur þúsund arabískum hirðingjum af Mahamid-ættbálkinum, sem hafa búið í suðausturhluta Níger áratugum saman, hefur verið gert að yfirgefa landið fyrir árslok. Þetta staðfestu yfirvöld á svæðinu í dag.
Herforingjastjórnin í Níger sakar Mahamid-fólkið um að útvega vígasamtökunum Boko Haram vopn og veita þeim aðstoð við birgðaflutninga og annan stuðning.
„Þetta eru afdráttarlaus fyrirmæli frá æðstu yfirvöldum landsins: Mahamid-fólkið verður að snúa heim í síðasta lagi 31. desember 2026. Sá frestur er ófrávíkjanlegur,“ sagði háttsettur embættismaður í Diffa-héraði í samtali við AFP.
Diffa er eitt helsta búsetusvæði hirðingjanna. Í meira en áratug hafa íbúar héraðsins orðið fyrir barðinu á ofbeldi af hálfu Boko Haram og keppinauta þeirra, vígasamtakanna ISWAP.
Skilríki verði afturkölluð
Mahamadou Ibrahim Bagadoma hershöfðingi, héraðsstjóri Diffa, kynnti fulltrúum Mahamid-fólksins úrslitakosti herforingjastjórnarinnar á fundi 8. nóvember. Þetta sagði embættismaður sveitarfélags sem sat fundinn.
Innanríkisráðuneyti Níger hrinti brottvísunaráætluninni af stað í apríl með erindi til héraðsstjóranna í Diffa og nágrannahéraðinu Zinder. Þar vísaði ráðuneytið til þess að búseta Mahamid-fólksins án tilskilinna heimilda hefði alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi.
Ráðuneytið fól héraðsstjórunum að bera kennsl á og skrá alla sem tilheyrðu Mahamid-hópnum og afturkalla með skipulegum hætti nígersk skilríki þeirra, þar á meðal nafnskírteini og vegabréf.
Þá var þeim gert að skipuleggja flutning fólksins til upprunalands þess og koma í veg fyrir að það sneri aftur til Níger.
Bagadoma sagði í ágúst að vopn sem hefðu verið haldlögð og upplýsingar sem aflað hefði verið á árunum 2023 til 2026 bentu til að einstakir meðlimir Mahamid-samfélagsins hefðu útvegað hryðjuverkahópum á svæðinu við Tsjadvatn vopn, skotfæri og aðrar birgðir. Um væri að ræða grun um aðild þeirra.
Skólum lokað og vatnsdælur fjarlægðar
Í síðasta mánuði fyrirskipuðu yfirvöld einnig lokun skóla og drykkjarvatnsbrunna sem ríkið hafði komið upp. Þau sögðu að Mahamid-samfélögin hefðu ein nýtt aðstöðuna, „á kostnað heimamanna“.
Embættismaður sveitarfélags í Diffa-héraði staðfesti við AFP í dag að viðkomandi skólum hefði verið lokað og vatnsdælur fjarlægðar.
Hann sagði jafnframt að yfirvöld á svæðinu gæfu Mahamid-fólki ekki lengur út skilríki. Væri fólk úr hópnum með slík skilríki þegar það væri stöðvað við öryggiseftirlit yrðu þau tekin af því.
Flúðu þurrka og átök
Fyrstu hirðingjarnir komu til Níger í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar. Þeir flúðu þá skæða þurrka á heimaslóðum sínum í Abéché-héraði í austurhluta Tsjad.
Síðar komu fleiri hópar sem flúðu átök í Tsjad og nágrannaríkinu Súdan.
Skortur á beitilandi og vatni, ásamt fjölgun búfjár, einkum úlfalda í eigu Mahamid-fólksins, hefur hins vegar leitt til átaka við heimamenn. Mannfall hefur orðið í sumum þeirra.
Friðarsamkomulög, meðal annars þau sem voru undirrituð árið 2018, hafa ekki nægt til að draga úr spennunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗