Elvar frábær í naumi tapi gegn toppliðinu

Elvar Már Friðriksson.

Elvar Már Friðriksson. mbl.is/Eyþór Árnason

Elvar Már Friðriksson átti flottan leik er Neptúnas mátti þola naumt tap gegn Zalgiris, 87: 82, í 10. umferð efstu deildar Litáen í dag.

Neptúnas situr nú í fimmta sæti deildarinnar með sex stig en Zalgris er í efsta sætinu með fullt hús stiga.

Elvar og félagar í Neptúnas voru með forystuna nær allan fyrri hálfleikinn en misstu hana frá sér rétt fyrir hálfleik. Zalgris hélt þeirri forystu lengi en rétt fyrir leikslok komst Neptúnas aftur yfir en missti forystuna í lokin.

Elvar lék 25 mínútur þar sem hann skoraði 17 stig, gaf fimm stoðsendingar og tók tvö fráköst.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅