Vilja 40 milljónir til að taka fleiri af biðlista
Viðbótarframlaginu er ætlað að fjármagna tvö stöðugildi faglærðs heilbrigðisstarfsfólks, fjölga þeim sem komast af biðlista í endurhæfingu og viðhaldsþjálfun og þróa fjarþjálfun. mbl.is/Golli
Parkinsonsamtökin og Taktur endurhæfing óska eftir 40 milljóna króna viðbótarframlagi á fjárlögum næsta árs til að efla þjónustu við fólk með Parkinson.
Þau segja fjárhagsramma nýs þjónustukaupasamnings við Sjúkratryggingar Íslands, sem er í undirbúningi, ekki nægja til að mæta þörfinni.
Þetta kemur fram í erindi til fjárlaganefndar Alþingis, dagsettu 13. nóvember. Þar segir að vinna við samninginn vegna ársins 2027 sé langt komin.
Allt að 46 í reglulegri þjónustu
Í erindinu er árleg hámarksgreiðsla samkvæmt samningnum tilgreind 69,3 milljónir króna á verðlagi ársins 2026. Innan þess fjárhagsramma miðast rekstraráætlun Takts við að 24 einstaklingar geti verið í endurhæfingu og 20 í viðhaldsþjálfun á hverjum tíma.
Áætlað er að allt að 46 einstaklingar geti nýtt þessa reglulegu þjónustu yfir árið. Fjöldinn ráðist af þjónustuþörf hvers og eins. Auk þess sé gert ráð fyrir fræðslu, ráðgjöf eða annarri afmarkaðri þjónustu fyrir allt að 130 einstaklinga.
Vilja taka fleiri af biðlista
Viðbótarframlaginu er ætlað að fjármagna tvö stöðugildi faglærðs heilbrigðisstarfsfólks, fjölga þeim sem komast af biðlista í endurhæfingu og viðhaldsþjálfun og þróa fjarþjálfun.
Fjarþjálfunin á meðal annars að nýtast nýgreindu fólki á vinnumarkaði og fólki á landsbyggðinni. Taktur veitir þverfaglega endurhæfingu í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/6/64/664557.jpg)