Elín Klara markahæst og tryggði sæti í Evrópudeildinni
Elín Klara Þorkelsdóttir fór á kostum er sænska liðið Sävehof hafði betur gegn HSG Bensheim/Auerbach, 34: 30, í seinni viðureign liðanna í umspili um sæti í Evrópudeild kvenna í handbolta.
Elín Klara var markahæst í dag þar sem hún skoraði 10 mörk en hún hafði skorað níu mörk í fyrri viðureigninni og var þar einnig markahæst.
Jafnt var í hálfleik, 16:16, en hægt og rólega náði Sävehof að koma sér í forystuna og tryggði að lokum fjögurra marka sigur.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗