Ringulreið í flugsamgöngum dregst enn á langinn
Í dag hefur hundruðum flugferða verið aflýst, og enn er spurningum um það hvernig slíkt öngþveiti gæti skapast á einni nóttu út frá einum mistökum ósvarað. AFP/Ryan Murphy
Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur varað við því að sú ringulreið sem ríkt hefur í flugsamgöngum þar í landi kunni að dragast á langinn um einn dag til viðbótar.
Orsök ringulreiðarinnar var flugbann sem lagt var á vegna umfangsmikillar bilunar í fjarskiptakerfum, sem ríkisstjórnin hefur rakið til misheppnaðra skipta á gömlum koparfjarskiptaköflum.
Flugferðum var raskað um allan heim og urðu meðal annars seinkanir á flugferðum Icelandair. Í dag hefur hundruðum flugferða verið aflýst, og enn er spurningum um það hvernig slíkt öngþveiti gæti skapast á einni nóttu út frá einum mistökum ósvarað.
Tæki lengri tíma en áætlað var
Bandaríkjaforseti rauf í morgun óvenju langa þögn sína til þess að tjá sig um málið, og kenndi þar forvera sínum í embætti, Joe Biden, um klúðrið.
Bryan Bedford, forstjóri FAA, hafði sagt í gær að flugsamgöngur fyrir milljónir Bandaríkjamanna sem sátu fastir á flugvöllum heimsins yrðu komnar í eðlilegt horf við lok vinnudags í dag.
Sean Duffy samgönguráðherra, hefur hins vegar sagt frá því í viðtölum í dag að í raun tæki lengri tíma að koma flugvélum, áhöfnum og farþegum þangað sem þau þyrftu að vera.
„Í lofthelginni munum við því sjá hlutina færast í eðlilegt horf í dag, en líklega verður allt komið í fullkomlega eðlilegt horf á morgun,“ sagði Duffy í viðtali í fréttatíma ABC News.
„Flugvélar og áhafnir voru ekki á réttum stöðum vegna föstudagsins, svo það tekur smá tíma að laga það.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗