Miðaldra konur geta tekið gleði sína

Estrógenlyfið Lenzetto er ófáanlegt hér á landi í bili, en væntanlegt um mánaðamótin. Ljósmynd/EUmed

Ritstjórn mbl.is bárust spurnir af því fyrir helgina að estrógenlyfið Lenzetto væri ófáanlegt á landinu, lyf sem ætlað er til meðferðar við einkennum estrógenskorts eftir tíðahvörf kvenna og fengust misvísandi svör á lýðnetinu um endurkomu þess.

Haft var samband við sölu- og markaðsfyrirtækið Vistor ehf. sem rekur starfsemi á sviði lyfja- og heilbrigðislausna og fengust þau svör þar, hjá Sigrúnu Sif Kristjánsdóttur, viðskiptastjóra Gedeon Richter, sem er markaðsleyfishafi Lenzetto hjá Vistor, að lyfið væri væntanlegt í apótek á landinu um mánaðamótin.

„Eftirspurnin hefur verið meiri en framleiðslan og skortur á lyfinu um allan heim, en nú stendur til að auka framleiðslu lyfsins til að fyrirbyggja að þetta gerist aftur,“ segir Sigrún við mbl.is og bætir því við að langvarandi skortur hafi verið á Lenzetto á Norðurlöndum, en Ísland hafi þó sloppið örlítið betur.

Blaðamannafundur í Svíþjóð um hörgulinn

Estrógenlyfjaskorturinn á Norðurlöndum varð nýlega tilefni blaðamannafundar í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi þar sem félagsmálaráðherra landsins, sviðsstjóri sænsku lyfjastofnunarinnar og forstjóri sænsku lyfjagreiðslunefndarinnar kynntu lokaniðurstöður verkefnis sem miðar að því að bæta aðgengi að estrógenlyfjum í landinu.

Á fundinum, sem haldinn var 4. nóvember eins og Aftonbladet sænska greindi frá, kom fram að staðan hefði skánað verulega og sala á estrógenlyfjum, sem tekin eru inn um húð, svo sem plástrum, geli og úða, en Lenzetto er úðalyf, aukist um 75 prósent í september miðað við sama mánuð í fyrra.

Hefur sænska lyfjastofnunin veitt forgang fyrir samhliða innflutningi á estrógenúðum og -plástrum ásamt því að veita undanþágur fyrir estrógen-geli til að mæta skortinum og eru möguleikar nú kannaðir á því að innlendur framleiðandi geti hafið framleiðslu estrógenlyfja fyrir sænska markaðinn.

Í Svíþjóð er Lenzetto hins vegar ekki væntanlegt í lyfjaverslanir á ný fyrr en í janúar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅