Fullkomin byrjun Inter hrundi á fjórum mínútum

Cecilía Rán Rúnarsdóttir.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir. Ljósmynd/Alex Nicodim

Inter Mílanó fékk heldur betur skell er liðið mátti þola dramatískt tap gegn Juventus, 3:2, í 7. umferð A-deildar Ítalíu í knattspyrnu kvenna í Mílanó í dag. 

Inter situr nú í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, fimm stigum á eftir Roma. Fyrir leikinn í dag hafði Cecilía Rán Rúnarsdóttir, aðalmarkvörður Inter, ekki fengið á sig mark í fyrstu sex leikjunum.

Markalaust var í fyrri hálfleik en fyrsta mark leiksins leit dagsins ljóst á 54. mínútu þegar Brittany Raphino kom Inter yfir. Inter komst síðan í tveggja marka forystu á 74. mínútu og virtist liðið hafa tryggt sér sigurinn.

Það var hins vegar ekki raunin þar sem Juventus minnkaði muninn á 89. mínútu og jafnaði síðan metin á annarri mínútu uppbótartíma. Ekki nóg með það heldur tryggði Juventus sér sigurinn mínútu seinna.

Cecilía var á milli stanga Inter í dag og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilaði fyrstu 80 mínútur leiksins.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅