Sigurði Helga brá þegar hann sá mynd af sér og föður sínum á Facebook - Ástæðan er óhugnanleg
Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 16:27
Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins.
Sigurður Helgi Pálmason þingmaður Flokks fólksins veltir fyrir sér ábyrgð samfélagsmiðla og rétt einstaklinga til eigin ímyndar eftir að hann sá erlent fyrirtæki auglýsa vörur sínar með mynd af Sigurði og föður hans. Mynd sem fyrirtækið tók af leyfis af Facebook-síðu Sigurðar, breytti með gervigreind og notaði í greidda auglýsingu hérlendis.
„Í morgun sá ég nokkuð sem mér fannst frekar óhugnanlegt,“ segir Sigurður í færslu sinni þar sem hann vekur athygli á málinu.
„Mér brá þegar ég sá þetta. Sem alþingismaður geri ég mér fulla grein fyrir því að ég er opinber persóna. En þetta er mynd af mér og pabba.“
Segir Sigurður eftir nokkra fyrirhöfn hafa tekist að fá Facebook til að fjarlægja auglýsinguna. Honum finnist þó merkilegt að síða fyrirtækisins stendur enn óhreyfð.
„Hvað kemur þá í veg fyrir að fyrirtækið, sem virðist aðeins vera viku gamalt og skráð erlendis, taki aðra mynd og geri nákvæmlega það sama aftur? Og til hvers er þetta gert? Vinir mínir og kunningjar myndu eflaust renna á þær tvær grímur ef þeir sæju mig auglýsa fyrirtæki sem ég hef aldrei heyrt um. En hvað með þá sem þekkja ekki til og átta sig síður á því að eitthvað sé ekki eins og það á að vera?
Með gervigreind er orðið ótrúlega auðvelt að taka myndir af fólki, breyta þeim og setja í allt annað samhengi. Við erum misjafnlega vel að okkur í þessari tækni og þróunin er hröð.“
Myndin af feðgunum Pálma og Sigurði Helga. Mynd: Facebook.
Sigurður segir dæmi sem þetta vekja upp spurningar um ábyrgð samfélagsmiðlanna sjálfra. Facebook hafi tekið við greiðslu fyrir að birta þessa auglýsingu og dreifa henni til fólks hér á landi.
„Hvaða ábyrgð ber fyrirtæki eins og Meta þegar það hagnast á birtingu auglýsinga sem nota myndir af fólki án leyfis? Og er nóg að fjarlægja eina auglýsingu þegar búið er að tilkynna hana, en leyfa sama aðila að halda áfram að auglýsa?
Við höfum lög um höfundarrétt, persónuvernd og markaðssetningu sem veita okkur ákveðna vernd. En hversu vel virka þau í raun þegar erlent fyrirtæki getur notað andlit okkar í auglýsingaskyni án leyfis? Hver ber ábyrgðina og hvernig á fólk að geta leitað réttar síns?“
Myndin breytt með gervigreind. Feðgarnir komnar í peysur. Mynd: Facebook.
Bendir Sigurður á að í Danmörku hafi verið lagt fram frumvarp sem miðar að því að tryggja einstaklingum skýrari rétt yfir eigin andliti og rödd gagnvart stafrænum eftirlíkingum. Hér á landi eru einnig breytingar á höfundalögum í undirbúningi.
Segist Sigurður ætla að kynna sér þetta betur í störfum sínum á Alþingi og skoða hvort við þurfum skýrari lög og úrræði til að vernda rétt einstaklinga til eigin ímyndar. „Þar vil ég ekki síður skoða ábyrgð samfélagsmiðla, sérstaklega þegar þeir taka sjálfir við greiðslum fyrir auglýsingar sem kunna að brjóta gegn réttindum fólks.“
„Eigum við sjálf réttinn yfir eigin andliti, eða geta aðrir tekið það og notað að vild? Og hver ber ábyrgðina þegar það gerist?“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗