Er mittismálið rúmlega helmingurinn af hæð þinni?
Þú hefur kannski einhvern tímann staðið fyrir framan spegilinn og klipið aðeins í magann og velt fyrir þér hvaðan þessi aukakíló komu. Hjá flestum setjast aukakílóin fyrst á magann. Spurningin er því hvað mæling á mittismálinu segir um heilsufar þitt?
Þumalfingurreglan er einföld. Mittismálið á að vera minna en helmingurinn af hæð þinni. Þetta er kallað mitti-til-hæðar-sambandið og er betra en BMI til að segja fyrir um hjartasjúkdóma, sykursýki 2 og ótímabæran dauða.
Að minnsta kosti benda niðurstöður stórrar rannsóknar vísindamanna við University of Sheffield og University of Nottingham til þess.
Til að reikna þetta er mittismálinu deilt með hæðinni. Ef þú ert 170 cm á hæð og mittismálið er 90 cm, þá verður talan 0,53. Þá er mittismálið rúmlega helmingurinn af hæð þinni og þú ert yfir mörkunum.
BMI reiknar aðeins út samband hæðar og þyngdar, það greinir ekki á milli vöðva og fitu og tekur ekki með í reikninginn hvort fitan situr á mjöðmunum eða djúpt inni í maganum.
Það er einmitt djúpa magafitan, sem liggur í kringum innri líffærin, sem er nátengd hættunni á sykursýki 2 og hjartasjúkdómum. Það er þetta sem mitti-til-hæðar-sambandið tekur á.
Laura Gray, hjá University of Sheffield, sagði í fréttatilkynningu sagði að BMI sé vel þekkt mæliaðferð en hún geti villt um fyrir fólki, sérstaklega eldra fólki og fólki með lítinn vöðvamassa, og fengið það til að halda að það sé ekki í áhættuhópi varðandi offitu.
Hún benti einnig á að það sé auðveldara að skilja mitti-til-hæðar-sambandið en BMI. Heilbrigður líkami sé þegar mittismálið sé minna en helmingurinn af hæðinni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗