Fórnarlamba umferðarslysa minnst nyrðra

Stillt var upp í mynd af viðbragðsaðilum en þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Gná var á svæðinu. mbl.is/Þorgeir

Fórnarlamba umferðarslysa var minnst á Akureyri í dag eins og víða annars staðar á landinu en alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. 

Að þessu sinni er áherslan á unga ökumenn en 12 hafa látist í umferðinni á árinu og eru merki um að áhættuhegðun ungra ökumanna sé að færast í aukana. 

Minningarstundin á Akureyri fór fram klukkan 14 í dag við Hjalteyrargötu 12 á athafnasvæði björgunarsveitarinnar þar í bæ. 

Séra Sindri Geir Óskarsson, prestur við Glerárkirkju, flutti hugvekju og stýrði einnar mínútu þögn. mbl.is/Þorgeir

Þyrlan á svæðinu

Stillt var upp í mynd af viðbragðsaðilum en þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Gná var á svæðinu. 

Séra Sindri Geir Óskarsson, prestur við Glerárkirkju, flutti hugvekju og stýrði einnar mínútu þögn. 

Emma Agneta Björgvinsdóttir flutti þá reynslusögu sína en hún missti 12 ára son sinn Blæng Mikael Bogason í umferðarslysi árið 2013.

Fulltrúar lögreglu og bæjarstjórnar Akureyrar fluttu einnig ávörp á minningarstundinni á Akureyri. 

Veður var ekki með besta móti.

Veður var ekki með besta móti. mbl.is/Þorgeir

Fulltrúi lögreglu flutti ávarp.

Fulltrúi lögreglu flutti ávarp. mbl.is/Þorgeir

mbl.is/Þorgeir

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var á staðnum.

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var á staðnum. mbl.is/Þorgeir

Boðið var upp á kaffi, kakó og með því að minningarstund lokinni. mbl.is/Þorgeir

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅