Tenerife vann fyrsta leikinn eftir andlát Jesús
Tenerife hafði betur gegn Ceuta, 2:0, í 14. umferð næstefstu deildar Spánar í knattspyrnu í dag. Var þetta fyrsti leikur Tenerife eftir andlát Jesús de Miguel.
Jesús hneig niður í leik gegn Andorra eftir að markvörður Andorra, Jesús Owono, æddi úr markinu og skall harkalega í bringu hans. Jesús lést í kjölfar atviksins og var leikurinn stöðvaður og honum frestað.
Fyrir leikinn í dag var minning Jesús heiðruð er leikmenn í báðum liðum voru klæddir í treyju með hans númeri.
Tenerife pay tribute to Jesus de Miguel before their match against Ceuta, the first game since his tragic passing ❤️ https://t.co/cgMFQX4wuv
— Match of the Day (@BBCMOTD) November 15, 2026
Tenerife komst yfir eftir 40 mínútur og gulltryggði síðan sigurinn á 86. mínútu.
Alvaro Cervera, knattspyrnustjóri Tenerife, sat fyrir svörum fyrir leik þar sem hann sagði leikmenn sína hægt og rólega komast í eðlilegt stand:
„Þegar við erum saman líður okkur vel, á æfingunum gengur okkur vel, „Það er eins og hópurinn sé smám saman að komast aftur í eðlilegt horf. Það sem við vitum ekki er hvernig öllum líður þegar við erum ekki saman, og það skiptir miklu máli.“
„Hver og einn hefur sína eigin leið til að takast á við þetta og sínar eigin hugsanir; sumir hafa fólk heima sem styður þá, á meðan aðrir eru meira einir á báti.
„Okkur miðar áfram, þetta er mjög hægt ferli, en við erum á réttri leið – þetta er erfitt, þetta er flókið,“ sagði Cervera
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗