Boðar breytingar á umferðarlögum

Eyjólfur hélt ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa í dag.

Eyjólfur hélt ávarp á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa í dag. mbl.is/Anton Brink

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra stefnir að því að kynna veigamiklar breytingar á umferðarlögum í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. 

Þetta kom fram í ávarpi hans á Minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa í dag.

Þá sagði hann að jafnframt yrði sett af stað sérstakt fræðslu- og kynningarátak um hraðakstur. 

Efla umferðaröryggi

Lögunum er ætlað að efla umferðaröryggi enn frekar og stemma stigu við hraðakstri, meðal annars með því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum. 

Sjónum minningardagsins var að þessu sinni beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. 

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að hraðakstur sé ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks en að á hinn bóginn staðfesti gögn frá Samgöngustofu að ungir ökumenn hafi bætt sig á síðustu árum og standi sig almennt betur í umferðinni en áður.

Þá hafi slysum af völdum ungra ökumanna fækkað talsvert á síðustu 20 árum ásamt því sem slösuðum ungmennum í bifreið hefur einnig fækkað mikið. 

„Við verðum að bregðast við og vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni með samstilltu átaki okkar allra, samfélagsins alls,“ sagði Eyjólfur í ávarpi sínu.

Minningarstundir voru haldnar á sautján stöðum um allt land í dag. mbl.is/Anton Brink

Haldinn um allt land

Minningardagurinn var haldinn um allt land í dag en tilgangur hans er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni.

Fjöldi fólks sótti minningarstundir sem haldnar voru á sautján stöðum um land allt í samvinnu við einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðila. Þá gegndu unglingadeildir björgunarsveitanna lykilhlutverki við skipulagningu viðburða.

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna.

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. mbl.is/Anton Brink

Í Reykjavík var athöfn haldin venju samkvæmt við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Ásamt Eyjólfi flutti Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarp. Haraldur Már Haraldsson var ræðumaður dagsins og sagði reynslusögu sína en ungur að árum varð hann sökum hraðaksturs valdur að banaslysi æskuvinar síns.

Við athöfnina flutti MH-kórinn einkennislag dagsins, I Think of Angels. KK samdi lagið til minningar um systur sína, sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið í flutningi KK og Ellenar, systur hans, var leikið samtímis á öllum útvarpsstöðvum kl. 14.

Í tilkynningunni segir að samkvæmt nýrri könnun Samgöngustofu hafi um það bil fjórðungur Íslendinga, rúmlega 26%, misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.

Þá segir að Minningardagurinn sé alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.

Halla Tómasdóttir forseti hélt ávarp.

Halla Tómasdóttir forseti hélt ávarp. mbl.is/Anton Brink

Haraldur Már Haraldsson var ræðumaður dagsins.

Haraldur Már Haraldsson var ræðumaður dagsins. mbl.is/Anton Brink

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅