Hvað dreymir þig um að eignast fyrir heimilið?
Það eru margar leiðir til þess að gera fallegt heima hjá sér. Hér eru nokkrar tillögur. Samsett mynd
Á góðum degi, sérstaklega rétt eftir útborgunardag, getur verið ansi freistandi að kíkja í búðir og skoða hvaða gersemar leynast þar.
Hvort sem það er nýtt ilmkerti, fallegur lampi, litríkur púði eða draumasófinn er alltaf jafngaman að huga að heimilinu, breyta, bæta og fríska upp á útlitið. S
vo má líka bara láta sig dreyma ef hluturinn er aðeins utan þess sem buddan leyfir. Fyrir þá sem leita að jólagjöf handa ástvini, einhverju til að gleðja sjálfa sig eða hlutnum sem fullkomnar stofuna gæti eitthvað á þessum lista hitt í mark.
Það er fátt meira kósí en að kveikja á lampa og koma sér fyrir með góða bók. Þessi gólflampi fæst í Línunni. 52.000 kr.
Spegill með skemmtilega lögun sómir sér vel í hvaða herbergi sem er. Fæst í Epal og kostar 39.900 kr.
Svona hliðarborð kemur sér vel, sérstaklega þar sem hægt er að nýta það sem hirslu, bar og fleira. Fæst í Heimili og hugmyndum á 67.500 kr.
Það tilheyrir þessum árstíma að kúra undir hlýju teppi. Þetta fallega teppi fæst í Tekk og kostar 36.000 kr.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


















