Lygilegar tölur Ómars Inga í stórsigri
Ómar Ingi Magnússon var gjörsamlega frábær í sigri Magdeburg gegn Flensburg, 37: 29, í 11. umferð efstu deildar Þýskalands í handbolta í dag.
Magdeburg er því í öðru sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi á eftir Kiel sem hefur spilað tveimur leikjum meira en Íslendingaliðið.
Flensburg náði forystunni snemma leiks en Magdeburg var ekki lengi að ná henni og missti hana aldrei frá sér eftir það.
Ómar Ingi fór mikinn og skoraði 14 mörk ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og gaf jafn margar stoðsendingar og Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark.
Íslendingarnir í Magdeburg skoruðu þar með 20 mörk af 37 mörkum Magdeburg.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗