Fjórir af hverjum tíu hlutum til einstaklinga
Að útboðinu loknu verður heildarfjöldi útistandandi hluta í Bláa lóninu 1.024.763.489 hlutir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fjórir af hverjum tíu hlutum komu í hlut einstaklinga í hlutafjárútboði Bláa lónsins. Aðrir hlutar fóru til fagfjárfesta, fyrirtækja og annarra lögaðila.
Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar í dag.
Mikill áhugi var á hlutafjárútboðinu en tæplega 4.000 áskriftir bárust að andvirði um 15,3 milljarða króna.
Rúmlega 70 milljónir hlutar í A og B
Samkvæmt tilkynningunni voru seldir um 72,7 milljónir hluta í áskriftarbók A að söluandvirði um 6,9 milljarða króna. Áskriftir upp að einni milljón króna voru ekki skertar en samsvarandi viðmið fyrir starfsmenn Bláa lónsins var fimm milljónir króna. Fjárhæðir umfram þessi viðmið voru skertar um 20%.
Þá segir að um 77,3 milljónir hluta hafi verið seldir í áskriftarbók B að söluandvirði um 7,3 milljarða króna. Áskriftir í áskriftarbók B voru ekki skertar.
Viðskipti með hlutabréf hefjast á föstudag
Í tilkynningunni segir að fjárfestum hafi verið tilkynnt um úthlutun hluta og stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hefjist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland föstudaginn 20. nóvember. Kauphöllin hefur þegar samþykkt umsókn félagsins um skráningu, með fyrirvara um að skilyrði um dreifingu hlutafjár verði uppfyllt fyrir fyrsta viðskiptadag.
Að útboðinu loknu verður heildarfjöldi útistandandi hluta í Bláa lóninu 1.024.763.489 hlutir.
Landsbankinn og Fossar Fjárfestingarbanki höfðu umsjón með útboðinu. Þá hafði Landsbankinn jafnframt umsjón með skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗