Íslensk tónlist verður út undan

Iceland Airwaves bauð upp á sannkallaða tónlistarveislu. Uppi til vinstri er Una Torfa, fyrir neðan hana Mammút. Birnir er efstur hægra megin, þá Spacestation og loks Júníus Meyvant. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson

Íslensk tónlist á undir högg að sækja í heimi þar sem flestir hlusta á tónlist á streymisveitum. Þó að Íslendingar séu afar stoltir af sinni tónlist er hún þó aðeins brot af því sem þeir hlusta á. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Tónlistarmiðstöð lét framkvæma.

María Rut Reynisdóttir framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar greindi frá helstu niðurstöðum könnunarinnar í pallborðsumræðum á ráðstefnu sem haldin var samhliða Iceland Airwaves í síðustu viku.

Ráðast gegn vandanum

Könnunin var gerð í samstarfi við Félagsvísindastofnun þar sem yfir eitt þúsund manns svöruðu spurningum en einnig var stuðst við niðurstöður rýnihópa. Niðurstöðurnar eru að 79% Íslendinga kveðast vera mjög stolt af íslenskri tónlist en aðeins 17% af þeirri tónlist sem þeir streyma eru íslensk. Um 44% segjast hins vegar vilja hlusta meira á íslenska tónlist. Til stendur að greina nánar frá niðurstöðunum á næstunni.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅