Arteta erfiðastur að eiga við
Graham Scott, fyrrverandi dómari í ensku úrvalsdeildinni, svaraði á dögunum í viðtali við The Athletic hver væri erfiðasti knattspyrnustjórinn og hver væri erfiðastur viðureignar á hliðarlínunni.
Scott hafði verið dómari í úrvalsdeildinni frá árinu 2015 en hann settist í helgan stein eftir tímabilið 2025.
Í viðtalinu var hann spurður hvaða stjóri væri erfiðastur að glíma við og þar var bara einn maður sem kom til greina:
„Það er Arteta, hann er sá erfiðasti.
„Hann reynir stöðugt á öll mörk. Mér er að mörgu leyti alveg sama um það; hann er að reyna að ná samkeppnisforskoti fyrir liðið sitt. Það er í lagi. Það er hluti af starfi hans. Og auðvitað hefur hann fullan rétt á því, og það er okkar að setja þeim mörk, en hann gerir manni lífið afskaplega erfitt.“
„Hann er alltaf utan tæknisvæðisins. Ég fylgdist með honum nýlega í leik gegn Everton og í hvert skipti sem Everton var með boltann einhvers staðar nálægt hliðarlínunni hans megin var hann nánast farinn að taka þátt í pressunni .“
„Sem fjórði dómari er þetta martröð, því ef maður stígur fram og gerir eitthvað í málinu er maður sagður smámunasamur og smásálarlegur.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗