Nýbakaðir foreldrar tóku við þrjúhundruðasta bílnum
Bílaumboðið Askja hefur afhent yfir 300 smart-bíla það sem af er ári. Smart er nú þriðja mest selda rafbílamerkið á Íslandi, með 5,39% markaðshlutdeild, samkvæmt tölum Samgöngustofu sem vísað er til í tilkynningu frá Öskju.
Þrjúhundruðasti bíllinn var afhentur á dögunum. Kaupendurnir voru Davíð Örn Þorsteinsson og Arney Eva Gunnlaugsdóttir, sem eru nýbakaðir foreldrar og tóku við nýjum fjölskyldubíl.
Smart #5 hefur verið vinsælastur af bílum merkisins hér á landi, að sögn Öskju. Hann kom á íslenskan markað árið 2025 og hefur átt stóran þátt í aukinni sölu.
„Viðtökurnar hafa verið virkilega góðar og smart #5 hefur klárlega slegið í gegn. Fólk kann að meta hvað hann er rúmgóður og líka hvað hann er skemmtilegur í akstri. Hann hentar íslenskum aðstæðum einstaklega vel og það er auðvitað mjög gaman að sjá smart ná þessum áfanga á svona stuttum tíma,“ segir Hlynur Björn Pálmason, sölustjóri smart hjá Öskju, í tilkynningunni.
Verðlaunaður fyrir öryggi og fjölskylduvæna hönnun
Askja hóf sölu á nýrri kynslóð smart-bíla á Íslandi árið 2023, þegar smart #1 kom á markað. Síðan hafa smart #3 og smart #5 bæst við úrvalið.
Smart #5 hefur hlotið ýmsar alþjóðlegar viðurkenningar. Öryggisprófunarstofnunin Euro NCAP valdi hann besta bílinn í flokki stórra jepplinga í öryggisprófunum ársins 2025. Þá valdi breska bílatímaritið What Car? hann besta rafknúna fjölskyldujepplinginn árið 2026.
Bíllinn hefur einnig hlotið Red Dot-hönnunarverðlaunin og var valinn bíll ársins 2026 í Noregi.
Minni borgarbíll væntanlegur á næsta ári
Smart hyggst jafnframt snúa aftur til uppruna síns með nýjum tveggja sæta rafbíl, smart #2, sem væntanlegur er á markað árið 2027.
Merkið varð upphaflega þekkt fyrir smáa borgarbíla, en fyrstu bílarnir voru aðeins um tveir og hálfur metri á lengd.
Nýi bíllinn á að byggja á sömu hugmyndafræði og þeir, eftir að framleiðandinn hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á stærri og fjölhæfari rafbíla.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗