Húsið sett á sölu tveimur mánuðum eftir hörmulegt andlát hans
Fókus
Sunnudaginn 15. nóvember 2026 15:30
Presley Gerber. Mynd: Getty.
Hús Presley Gerber í Hollywood Hills, sem kostaði 3,6 milljónir dala, er komið á sölu aðeins tveimur mánuðum eftir hörmulegt andlát hans, 27 ára að aldri.
Húsið var sett á sölu á föstudag og er ásett verð 3,595 milljónir dala. Húsið keypti Gerber á 3,4 milljónir dala í mars 2023.
Í húsinu eru meðal annars fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, kaldur og heitur pottur, gufubað og upphituð sundlaug, eignin er girt af og býður upp á útsýni yfir gil. S
Presley lést með sviplegum hætti þann 20. september, en hann dvaldi þá á meðferðarheimilinu Resolutions Living í Santa Monica í Kaliforníu. Presley, sem var sonur Cindy Crawford (60 ára) og Rande Gerber (64 ára), lést af völdum meints ofskammts.
Presley Gerber. Mynd: Getty.
Page Six greindi frá því, í einkaviðtali, að rannsókn hefði farið fram á meðferðarheimilinu í kjölfar andláts hans, en ekki hafi fundist nægjanleg gögn til að staðfesta að eitthvað ólöglegt eða rangt hafi átt sér stað. Enn liggur ekki fyrir hver opinber dánarorsök var eða hvernig dauðsfallið bar að.
Eftir andlát hans tjáðu foreldrar Presley sig um missinn og minntust sonar síns sem ljúfs manns með fallega sál.
„Við erum gjörsamlega niðurbrotin yfir því að hafa misst okkar ástkæra son og bróður,“ segir í minningarorðum sem birt voru á Instagram-síðu Crawford þann 18. október, ásamt svarthvítri mynd af Presley með englavængi. „Við teljum okkur afar lánsöm að hafa fengið að hafa Presley í lífi okkar í 27 ár. Hann var ljúf og fögur sál sem elskaði og er elskuð nú og að eilífu. Við erum svo stolt af því hvernig hann kom fram í heiminum; af góðmennsku hans og viðkvæmni,“ segir ennfremur í skilaboðunum.
Fjölskyldan þakkaði einnig almenningi fyrir „mikla ást og stuðning, bæði frá fólki sem þekkir og elskar fjölskyldu okkar, og jafnvel frá ókunnugum sem finna til með okkur í sorginni.“
„Þar til við sjáumst aftur, elsku drengurinn okkar. Við elskum þig að eilífu mamma, pabbi og Kaia.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗