Thelma lagði upp mark er Hacken lyfti titlinum

Thelma Karen Pálmadóttir

Thelma Karen Pálmadóttir Ljósmynd/Alex Nicodim

Thelma Karen Pálmadóttir lagði upp fyrra mark Hacken í sigri liðsins gegn Pieta, 2:0, í 26. umferð efstu deildar Svíþjóðar í knattspyrnu kvenna í dag. 

Þetta var síðasta umferð deildarinnar en Hacken hafði tryggt sér meistaratitilinn í byrjun mánaðar. 

Fyrra mark leiksins kom á 47. mínútu þegar Thelma kom boltanum á Maju Bodin sem setti boltann í netið og Emma Ostlund gulltryggði síðan sigurinn á fjórðu mínútu uppbótartíma.

Hacken lék ótrúlega vel á þessari leiktíð þar sem liðið vann 23 leiki, gerði tvö jafntefli og tapaði aðeins einum leik og lauk tímabilinu sex stigum á undan Hammarby í öðru sætinu.

Hammarby sigraði sinn leik í dag gegn Kristianstad, 1:0, þar sem Ída Marín Hermansdóttir skoraði eina mark leiksins. 

Ásdís Halldórsdóttir skoraði mark AIK gegn Norrköpping í dramatísku jafntefli, 1:1, þar sem Ásdís kom AIK yfir á fjórðu mínútu uppbótartíma af vítapunktinum. 

Ekki nema mínútu jafnaði Norrköping metin og var jafntefli því niðurstaðan.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅