Lambafille með sósunni sem allir vilja
Klassískri sveppasósu er hellt yfir lambafille sem er steikt með hvítlauk og rósmaríni. Ljósmynd/Aðsend
Lambafille með klassískri og góðri sveppasósu er hin fullkomna helgarsteik. Kjötið er steikt upp úr smjöri með hvítlauk og rósmaríni en í sósuna fara meðal annars rjómi, rauðvín og örlítið hunang. Með kartöflum og fersku salati verður úr máltíð sem er tilvalið að njóta með fjölskyldu og vinum um helgina.
Uppskriftin er eftir Vigdísi Ylfu Hreinsdóttur, matreiðslumeistara með víðtæka reynslu úr veitingageiranum. Hún hefur meðal annars starfað á Fiskfélaginu, Silfri og Sjávarkjallaranum og verið yfirmatreiðslumaður á Tapashúsinu. Þá hefur hún farið með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleika í matreiðslu sem aðstoðarmaður og keppt til úrslita um titilinn Matreiðslumaður ársins.
Lambafille með sveppasósu
Lambafille með rjómakenndri sveppasósu er tilvalið að bera fram með kartöflum og fersku salati. Þessi uppskrift er fyrir fjóra. Ljósmynd/Aðsend
Lambafille
- 4 lambafille
- 30 g smjör
- ólífuolía
- 3 hvítlauksrif, pressuð
- rósmarín eftir smekk
- salt og pipar eftir smekk
Sveppasósa
- 2 msk. smjör
- 1 box sveppir, skornir í sneiðar
- 1 skalottlaukur, skorinn í sneiðar
- 3 hvítlauksrif, rifin
- 2 msk. hunang
- 2 dl rauðvín
- 2 msk. lambakraftur
- 1 dl vatn
- 2½ dl rjómi
Meðlæti
- salat eftir smekk
- kartöflur eftir smekk
Aðferð
Lambafille
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Kryddið kjötið með salti og pipar. Hitið smjör og örlitla ólífuolíu á pönnu og bætið rósmaríni saman við.
- Steikið kjötið í 2–3 mínútur á hvorri hlið. Bætið hvítlauknum á pönnuna undir lok steikingartímans.
- Færið kjötið í eldfast mót og eldið áfram í ofninum í um 8 mínútur, eftir þykkt og því hversu mikið það á að vera eldað.
- Takið kjötið úr ofninum og látið hvíla í um 10 mínútur áður en það er skorið.
Sveppasósa
- Bræðið smjörið á pönnu og steikið sveppina og skalottlaukinn þar til hvort tveggja hefur mýkst og tekið lit. Bætið hvítlauknum saman við og steikið stuttlega áfram.
- Bætið hunangi og rauðvíni á pönnuna og látið sjóða við vægan hita í nokkrar mínútur.
- Hrærið lambakrafti og vatni saman við.
- Hellið rjómanum út í og látið sósuna sjóða við vægan hita þar til hún hefur þykknað. Þykkja má hana með sósuþykkjara ef vill.
- Berið lambafille fram með sveppasósunni, kartöflum og fersku salati.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/19/1691986.jpg)
