Björn Jón skrifar: Fegurð er ekki smekkur
Tíð fundahöld og meint baktjaldamakk hinnar sérlega faglega skipuðu stjórnar Landsvirkjunar voru til umræðu á Alþingi á dögunum. Til hnútukasts kom milli Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingmanns Samfylkingar, og Sigurðar Inga Jóhannssonar, þingmanns Framsóknarflokks og fyrrv. ráðherra. Sagði Guðmundur Ari Sigurð Inga nú gagnrýna það fyrirkomulag við skipan stjórna ríkisfyrirtækja sem hann hefði sjálfur mælt fyrir á Alþingi. En Sigurður Ingi hafði raunar firrt sig ábyrgð á því máli og sagt ný lög um val á stjórnarmönnum Landsvirkjunar vera „áhugamál einhverra embættismanna“ í ráðuneyti hans og málinu „laumað“ fram hjá sér. Sagði Guðmundur Ari Sigurð Inga þá „kasta starfsfólki heils ráðuneytis undir rútuna í fjölmiðlaviðtölum til að fegra eigin hlut“.
Mér þykir vont að þingmenn séu ekki betur máli farnir en þetta. Að „kasta einhverjum undir rútu“ er hrá þýðing á enskri myndlíkingu, líkt og þegar sagt er: „He has been accused of throwing fellow Republicans under the bus for his personal agenda.“ (Ef menn ætluðu á annað borð að sletta með þessum hætti þá færi nú betur á að „fleygja manni fyrir strætisvagninn“). Í fregnum Morgunblaðsins af þessum orðaskiptum á Alþingi var merkingu orða þingmanns Samfylkingar komið á framfæri á góðri íslensku og slettan höfð innan tilvísunarmerkja. Öðru máli gegndi um frétt Ríkisútvarpsins. Sú stofnun beit höfuðið af skömminni með því að láta slettuna standa rétt eins og um hverja aðra íslensku væri að ræða. Menn virðast sökkva sífellt dýpra í málfarslegan drullupytt uppi í Efstaleiti og skeyta litlu um þær menningarlegu skyldur sem stofnuninni eru faldar með lögum.
Hvað varð um áhersluna á málvöndun?
Á morgun er dagur íslenskrar tungu á fæðingardegi Jónasar og við hæfi að gera móðurmálið að umtalsefni í þetta sinn. Ég rakst á dögunum á þingsályktunartillögu sem Alþingi samþykkti vorið 1984 þar sem skorað var á ríkisstjórnina „að hlutast til um að í Ríkisútvarpinu og í grunnskólum verði aukin rækt lögð við málvöndun og kennslu í framburði íslenskrar tungu“ eins og það var orðað. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra fylgdi málinu fast eftir. Stefnt skyldi að því að „efla það viðhorf almennings að telja vandað íslenskt mál óhjákvæmilegan þátt í kurteislegri umgengni og sjálfsagðan hluta umhverfisins“. Til að ná þeim markmiðum skyldi Ríkisútvarpinu beitt til aukinnar og markvissrar fræðslu til málræktar og allt efni sem frá stofnuninni kæmi „vera til fyrirmyndar um viðeigandi málfar“ eins og það var orðað (og óskandi ef svo væri).
Sverrir Hermannsson, arftaki Ragnhildar á stóli menntamálaráðherra, fylgdi málinu enn fastar eftir þegar hann tók við sem ráðherra 1986. Í kjölfarið var gefin út löng skýrsla um úrbætur í málaflokknum auk þess sem samin var leiðbeiningarbæklingur um íslenskan framburð. Sverrir lét ekki þar við sitja heldur skipaði sérstaka málnefnd undir forystu Indriða G. Þorsteinssonar rithöfundar en með honum í nefndina völdust Baldur Jónsson prófessor, Guðrún Kvaran deildarstjóri, Stefán Jónsson rithöfundur og Ævar Kvaran leikari. Einvalalið. Meðal niðurstaðna fimmmenninganna var að fella niður einkunnagjöf fyrir hraðlestur en taka þess í stað upp einkunnagjöf fyrir lestur almennt þar sem tillit yrði tekið til framburðar, lesturs og hraða. Tillögurnar eru raunar æði miklar að vöxtum en meðal annars skyldi „fagur framburður móðurmálsins og áheyrilegur upplestur“ verða skyldunámsgrein og eðlilegur hluti kennslu í skólum landsins.
Bar mönnum saman um að brýnt væri að taka „framburðarmálin fastari tökum í skólakerfi landsins“. Ekki væri þó rétt að innleiða sérstakan samræmdan ríkisframburð en leggja aftur á móti meiri áherslu á „að kenna og ýta undir eldri framburð, sem allmikill hluti þjóðarinnar notar enn og eftirsjá væri að, ef niður félli“. Þar var einkum átt við harðmæli, hv-framburð og raddaðan framburð. Skyldu nemendur hvarvetna hljóta góða þjálfun í að beita slíkum framburði enda ljóst að það gæti stuðlað að auknum skýrleika í framsögn (auk þess sem hv-framburður væri stundum nauðsynlegur við flutning ljóða).
Þá var lagt til að allir frétta- og dagskrárgerðarmenn hljóðvarps og sjónvarps sem og þulir sætu árlega námskeið í íslensku og framburði móðurmálsins. Sömuleiðis yrði stórefld framleiðsla sjónvarpsefnis um íslenska menningu, mál, bókmenntir og sögu.
Gengið til góðs
Hér voru uppi háleit markmið og miður að á vorum dögum sé slíkan menningarlegan metnað vart að finna í sölum Alþingis, hvað þá á Efstaleiti eða vestur á Melum. Ég umgengst mikið ungt fólk og það gerir sér oftast grein fyrir mikilvægi málvöndunar — að málið sér fagurt og blæbrigðaríkt. En unga fólkið skilur á sama tíma að það hefur verið svikið um nauðsynlega tilsögn í eigin móðurmáli, hinu ritaða jafnt sem því talaða. Kennsla í íslensku er víða í skötulíki.
Við sjáum í þessu efni (sem svo mörgu öðru) þau skemmdarverk sem unnin hafa verið á þjóðmenningunni á umliðnum áratugum þar sem traustri menntun í íslensku máli, sögu og menningu, hefur að stórum hluta verið varpað fyrir róða. Nú er mál að vinda ofan af niðurrifsstarfinu og hverfa aftur til tíma þeirrar málvöndunar sem Jónas má teljast upphafsmaður að. Tungutak hans var undurkliðmjúkt líkt og þegar hann ræðir um mundhvítar snótir og himinblá hnjúkafjöll, hafbláa öldu og himinskin, guðfagra sól og elfar ísbláar. Það eru einmitt nýju orðin sem Jónas bjó til sem gera það að verkum að ljóðin hans eru flestum auðskilin, þau skýra sig sjálf og orðin gæða myndirnar lífi. Vanda skyldi málið og leggja rækt við að tjá sig í hvívetna á góðu máli.
Við höldum minningu Jónasar best á lofti með því að vinna stöðugt að vexti og viðgangi íslenskrar tungu og þar með því fegursta í íslenskri þjóðmenningu. Í okkar samtíma er því gjarnan haldið fram að fegurð sé einungis huglæg, jafnvel hreinlega afstæð. Hún sé ekkert annað en einstaklingsbundinn smekkur. Ekkert gæti verið fjarri sanni. Fegurð í tungumálinu, í listum, vísindum, handverki er fólgin í fágun sem verður ekki unnin nema með þrautþjálfun svo mönnum sé kleift að skapa heildstætt verk. Að því verki þarf að vinna hörðum höndum ár og eindaga. Þar með höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗