Tafir ollið ruglingi við tímabókanir
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar hafa dregið verulega úr óþarfa komum á heilsugæslustöðvar.
Hún segir jafnframt að tafir á innleiðingu nýrrar rafrænnar þjónustu hafi valdið ruglingi við tímabókanir.
Þetta segir hún í samtali við mbl.is í kjölfar gagnrýni Odds Steinarssonar, framkvæmdastjóra Heilsugæslunnar á Kirkjusandi og varaformanns Læknafélags Íslands, á fyrirkomulag tímabókanna hjá opinberu heilsugæslunni.
Velti hann meðal annars upp þeirri spurningu hvort starfskraftur hjúkrunarfræðinga sem sinna símsvörun og netspjalli nýttist betur í beinni þjónustu við sjúklinga.
60% erinda leyst í síma
Ragnheiður segir Upplýsingamiðstöðina gegna mikilvægu hlutverki og að reynslan af henni sé góð. Þá hafi þjónustukannanir jafnframt sýnt mikla ánægju með störf miðstöðvarinnar.
„Það sem þessi þjónusta hefur sýnt og gefið okkur er mikil fækkun á óþarfa komum á heilsugæslustöðvar. Áður fyrr voru allar vaktir hjá okkur fullar af óþarfa komum. Það er ekki í dag,“ segir hún.
Hún segir að unnið sé að flokkaskiptingu erinda sem berast heilsugæslum. Þá verði öllum erindum skipt í tvo meginflokka, annars vegar bráð erindi sem leysa þarf innan sólarhrings og hins vegar erindi sem teljast ekki jafn brýn.
Mun þá fólk hringja í símanúmerið 1700 þar sem hjúkrunarfræðingar meta erindin og veita ráðgjöf. „Þau meta erindin þar í síma og gefa ráð og í 60% tilfella dugar það, sem er nokkuð gott,“ segir hún.
Í hinum 40% tilfella þar sem erindi er metið sem svo að þörf sé á frekari skoðun verða viðkomandi bókaðir beint á heilsugæslustöð eða á bráðamóttöku.
Nýta ábendingar til betrumbætingar
mbl.is hefur fjallað um mál móður sem reyndi án árangurs að bóka tíma hjá heimilislækni fyrir sjö ára son sinn. Konan hafði meðal annars beðið í hálftíma í netspjalli, leitað í tímabókun Heilsuveru árangurslaust og hringt á heilsugæslustöðina án árangurs.
Ragnheiði þykir leitt að fólk upplifi slíkan rugling og segir vilja heilsugæslunnar vera að nýta slíkar ábendingar til þess að bæta þjónustuna.
Hún segir vandann meðal annars tengjast því að ný rafræn þjónusta, sem á að einfalda móttöku og flokkun erinda, hafi ekki verið tekin í notkun á tilsettum tíma.
„Það átti sem sagt að opna í maí, síðan átti að opna í júní og síðan átti að opna í september og það er ekki enn búið að opna,“ segir hún.
Lýsi erindum sínum rafrænt
Ragnheiður segir að með nýrri rafrænni þjónustu, sem beðið sé eftir að opni á Ísland.is, verði fólki gert kleift að lýsa erindum sínum rafrænt.
Hjúkrunarfræðingar fara yfir erindin sem þar berast og leggja mat á hvort erindið þarfnist þjónustu læknis, sjúkraþjálfara, sálfræðings eða félagsráðgjafa.
Þá segir hún að eftirspurn eftir þjónustu heilsugæslunnar hafi um árabil verið meiri en framboð, þá sérstaklega vegna læknaskorts. Þar af leiðandi hafi verið lögð aukin áhersla á að fjölga fagstéttum innan heilsugæslunnar.
„Áður fyrr fórstu fyrst til læknis og síðan til sjúkraþjálfarans eða fyrst til læknis og síðan til félagsráðgjafans. En núna ferðu kannski bara beint til félagsráðgjafans eða beint til sjúkraþjálfarans þegar það er búið að meta erindið þitt,“ segir hún.
Hún tekur þó fram að áfram verði hægt að hringja beint á heilsugæslustöðvarnar og komið verði til móts við þá sem treysta sér til að nota rafrænar lausnir.
Bjartsýn á breytingarnar
Ragnheiður kveðst vera bjartsýn á að breytingarnar muni skila sér í öflugri og fjölbreyttari heilsugæsluþjónustu.
Viðurkennir hún þó að breytingarnar hafi ekki gengið áfallalaust fyrir sig. „Oft í svona breytingum verða svolitlar flækjur en svo komumst við yfir þær. Ég hef fulla trú á því,“ segir hún að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗